Hræsni? Neeeeiiii.....Amen
Jæja þá er maður bara lagstur í Biblíurannsóknir. Það er nú orðið nokkuð langt um liðið síðan ég gerði það síðast. Það eina sem ég mundi almennilega er það sem oft hefur verið vitnað í: "Eigi skalt þú leggjast með karlmanni sem kona væri. Það er viðurstyggð" (3M 18.22). Þetta stendur svart á hvítu í Biblíunni og því ekki um annað að ræða en hafa það í heiðri. "Engan mör úr nautum, sauðum eða geitum megið þér eta"(3M 7.23). "Eigi skuluð þér heldur nokkurs blóðs neyta í neinum af bústöðum yðar, hvorki úr fuglum eða fénaði" (3M 7.26). Ég verð að játa að öll fjölskyldan borðaði blóðmör í gær, hefur gert það áður og mun halda áfram að gera það í framtíðinni. Það sem bíður okkar er því eftirfarandi: "Hver sá, er nokkurs blóðs neytir, hann skal upprættur verða úr þjóð sinni" (3M 7.27).
Af hverju eru blóðmörsætur velkomnar í íslensku þjóðkirkjuna á meðan samkynhneigðir upplifa sig sem annars flokks þegna? Einhverjir geta kannski líka svarað mér hvers vegna prestar raka sig. Eða stendur ekki í Biblíunni þar sem fjallað er um heilagleika presta eftirfarandi: "Eigi skulu þeir gjöra skalla á höfði sér, eigi raka skeggrönd sína, né heldur skera skurði í hold sitt" (3M 21.5).
Er kannski hugsanlegt að Biblían sé notuð til að réttlæta hommafóbíu og fordóma? Menn virðast allavega hafa talsvert frelsi til að velja og hafna og taka það sem hentar best. Ég man allavega ekki eftir að rætt hafi verið mikið um eftirfarandi í þeim Guðsþjónustum sem ég hef hlýtt á: "Og ef prestsdóttir vanhelgar sig með saurlifnaði, þá vanhelgar hún föður sinn. Hana skal brenna á eldi" (3M 21.9).
kv Kalli

4 Comments:
Vá, ég verð bara kjaftstopp! Trúi því varla að þetta séu beinar tilvitnanir úr Biblíunni...
En verð reyndar að vera sammála að þetta er óttarleg hræsni allt saman...
kv.
Anna Björg
By
Anonymous, At
Tuesday, 20 March, 2007
Blessaður Kalli
Menn geta valið og hafnað eftir hentugleika í túlkunum á ritningunni eins og best má sjá í hinum ýmsu söfnuðum sem hver er með sínar áherslur og túlkanir. Ef ég man rétt þá þá leggur ritningin bann við því að eiga ,,fráskylda" konu og kann það jafnvel að standa í sumum bókstafstrúarmönnum. Það er gaman að spá í hinar ýmsu túlkanir og ekki síður stofnendur hinna ýmsu klofningshópa sem flestir hafa fengið vitranir, heyrt raddir,og skilaboð. Einn þeirra var rugludallurinn og mormóninn Smith sem fann meira að segja grafnar töflur með skilaboðum sem hann kom svo í lóg, samkvæmt skipunum að ofan, að sjálfsögðu, og gat því ekki sýnt er á hann var gengið. Sá hafði eitthvað verið í buisness áður en hann fékk vitranirnar eins og margir aðrir sem öðlast hafa svipaðar sýnir. E.t.v. hefði þetta lið allt fengið viðeigandi meðferð á Maudsley ef sú stofnun hefði verið fyrir hendi í den tid.
P.S.
Ég legg til að formaður Bændasamtakanna verið látinn gera úttekt, eina sanna túlkun, á ritningunni fyrir þjóðkirkjuna enda maðurinn sérlega vel að sér um siðferði af öllum toga og með reynslu af slíkum túlkunum eins og menn muna í sambandi við klámráðstefnuna sem aldrei varð.
Amen,
Einar
By
Anonymous, At
Tuesday, 20 March, 2007
Já þetta könnumst við mjög vel við hér þar sem búum. Söfnuðir taka bara það sem hentar þeim úr biblíunni og restin skiptir ekki máli. Gott dæmi um það er að það komast upp um tvo ef ekki þrjá presta að þeir væru hommar eða hefðu allavegna haft einhverjar hvatir til annarra karlmanna og það voru að sjálfsögðu endalaus sjónvarpsviðtöl við aðra presta til að fá svör við þessu. Einn þeirra kom í viðtal og sagði að þetta væri allt Satan að kenna. Hann reyndi að draga áhrifaríkt fólk innan kirkjunnar niður og fengi það til að syndga. Þetta fannst eins sú besta afsökun. Já ef maður gerir eitthvað af sér...kenna bara Satan um.
By
Fnatur, At
Tuesday, 20 March, 2007
Búinn að lesa bókina, sammála, hún er mjög góð. kv Kalli PS Til hamingju með gullinhærða soninn!
By
Anonymous, At
Monday, 26 March, 2007
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home