Dýralíf
Síðustu helgi fórum við Ásta með strákana í bíó í Beckenham. Þetta var í fyrsta sinn sem Kalli fór í bíó. Fyrir valinu varð myndin "Happy Feet". Þetta var stórskemmtileg mynd um misþroska mörgæs; hún gat ekki sungið, bara dansað steppdans. Kalli var dálítið hræddur til að byrja með en síðan lifnaði yfir honum þegar hann fékk risapoppkornskassa og nammipoka.
Við vorum svo hrifin að keisaramörgæsunum að við dustuðum rykið af dýralífsmyndinni "The March of The Penguins", þar sem Morgan Freeman er sögumaður. Þetta er frábær mynd í alla staði og myndatakan í sérflokki.
kv Kalli
Við vorum svo hrifin að keisaramörgæsunum að við dustuðum rykið af dýralífsmyndinni "The March of The Penguins", þar sem Morgan Freeman er sögumaður. Þetta er frábær mynd í alla staði og myndatakan í sérflokki.
kv Kalli

5 Comments:
Þið ættuð samt að reyna að komast yfir frönsku útgáfuna (upprunalegu) af Mörgæsa ganginum. Þar er ekki sögumaður heldur mismunandi raddir sem "túlka hugsanir" mörgæsanna og gerir það að verkum að hún er langt frá því að vera hefðbundin dýralífsmynd.
By
imyndum, At
Tuesday, 27 February, 2007
Ég vissi ekki að það væri til frönsk útgáfa af myndinni. Best að ath hvort netflix sé með hana á lager. Væri gaman að sjá hana.
By
Fnatur, At
Tuesday, 27 February, 2007
Þetta er reyndar frönsk mynd og er eftir Luc Jacquet og heitir "La marche de l'empereur" sem útnefnist "Konungamörgæsa gangan" á íslensku. Ég held reyndar að útgáfan sem gefin var út á íslensku sé með frönsku tali og íslenskum texta. Endilega verða sér úti um hana, ótrúlega sæt
By
imyndum, At
Wednesday, 28 February, 2007
mÉr finnst mörgaesir svo saet dyr, svo yndislega klaufaleg ad sjá en ótrúlega úrraedagod. Er ekki buin ad sja neina af thessum kvikmyndum. En gaf spúsa mínum í fyrra ljósmyndabók med mörgaesum og stórkostlegu landslagi, tharf ad fletta i gegnum hana aftur thökk se ykkur.
By
brynjalilla, At
Thursday, 01 March, 2007
http://www.imdb.com/title/tt0428803/
FUNDIN!!
By
Anonymous, At
Thursday, 01 March, 2007
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home