Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Thursday, February 01, 2007

Hann er Dísel!

Ég kom heim í dag eftir nokkurra daga Íslandsferð. Síðast fór ég heim fyrir rúmu ári. Þetta var hin besta ferð þótt ekki hefði ég getað hitt alla sem ég vildi.
Mestmegnis var ég norðan heiða. Til þess að auðvelda mér dvölina þar ákvað ég að panta mér bílaleigubíl hjá ónefndri bílaleigu. Þetta gerði ég að sjálfsögðu á netinu enda hefur það alltaf gengið ljómandi vel. Ég pantaði hvorki meira né minna en þriggja dyra Toyota Yaris sem ég hafði séð auglýstan á tilboði á 2000 kr daginn. Allt saman var klappað og klárt og ég var meira að segja búinn að fá staðfestingu með tölvupósti.
Þegar ég kom á Akureyrarflugvöll strunsaði ég beinustu leið á höfuðstöðvar leigunnar á Akureyri, sem var 0.5m2 bás gerður úr spónaplötum. Þar var enginn og greinilega ætlast til að maður notaði rauðan síma sem hékk fyrir utan. Ég tók síman og ýtti á R. Það hringdi nokkrum sinnum.
"Sigríður".
"Já, gott kvöld, ég var búinn að panta bíl. Ég er stattur hérna á flugvellinum."
"Nú, hvenær gerðiru það?"
"Uh, bara núna eftir hádegi í dag".
"Nú, ég hef ekkert tékkað á tölvunni eftir fjögur". Síðan tók við þögn og mér fannst eins og hún ætlaðist til þess að ég segði eitthvað; ég vissi bara ekki alveg hvað það átti að vera. Fannst þetta satt best að segja ekki vera mitt vandamál.
"Ja, ég pantaði þetta allavega á netinu og fékk staðfestingu með tölvupósti".
"OK, ég kem þá bara. Kem eftir svona korter, ég er nefnilega heima hjá mér." Fræjum sektarkenndar sáð í hjarta viðskiptavinarins á lystilegan hátt.
Ég arkaði út með ferðatöskuna í eftirdragi og beið við innganginn. Það leið ekki á löngu þar til jeppi ók upp að flugstöðinni og lagði ólöglega 2 metra frá mér. Kona um fertugt vippaði sér síðan út úr bílnum. Hún var klædd eftir veðri í þykkri úlpu og með loðhúfu á hausnum. Þetta var seint um kvöld og það var bara einn farþegi eftir í flugstöðinni: Ég. Hún virti mig hins vegar ekki viðlits heldur gekk ákveðnum skrefum framhjá mér og tók stefnuna beint á spónaplötubásinn, opnaði hann, kveikti á tölvu, sem merkilegt nokk var í básnum, og að lokum opnaði hún lúguna fyrir viðskiptavinum. Ég gekk að lúgunni. Það bergmálaði í hverju skrefi í tómri flugstöðinni.
"Gott kvöld", sagði ég. Hún hélt áfram að pikka eitthvað lyklaborðið og starði á skjáinn.
"Varst það þú sem hringdir".
"Já, það var ég".
"Hvernig bíll var það sem þú pantaðir?".
"Toyota Yaris, þriggja dyra. Ég sá að þið eruð með tilboð, 2000kr dagurinn, ég var að hugsa um að nýta mér það?".
"Við erum ekki með neitt svoleiðis tilboð".
"Nú, ég var nú bara að koma frá Reykjavíkurflugvelli og þar var verið að auglýsa þetta."
"Það er ekki neitt svona tilboð, dagurinn kostar 3900kr."
"Nú". Ég var eiginlega orðlaus, mér var fullkomlega ljóst að það myndi ekki þýða neitt að ræða þetta frekar. Auglýsingar um afslætti á Akureyri voru greinilega einskis virði ef þær birtust í Reykjavík. Áfram var pikkað á lyklaborðið.
"Það er enginn Yaris laus, bara Toyota Landcruiser".
"Nú, ég fékk staðfestingu á því að ég hefði bókað Yaris".
"Já, það er ekkert að marka, tölvan veit ekkert hvaða bílar eru lausir. Hún veit bara hvaða bílar eru í boði, en það er ekkert víst að þeir séu lausir."
"Ég stóð í þeirri trú að bókunarkerfið væri þannig að það biði bara upp á bíla sem hægt væri að leigja. Ég fékk allavega staðfestingu með tölvupósti."
"Nei, nei, tölvan veit ekkert hvaða bílar eru lausir. Ég get látið þig fá Landcruiserinn á aflsætti 8500 í staðinn fyrir 12000 kr daginn."
"Ég myndi nú vilja fá hann á sama verði og Yarisinn".
"Það er ekki hægt, þetta er það lægsta sem ég get farið".
"Veistu, þá held ég að ég eigi bara ekki annara kosta völ en að sleppa þessu bara." Ég mundi eftir tilboði hjá annari leigu á Akureyri. Var reyndar líka auglýst á Reykjavíkurflugvelli, en maður veit aldrei.
"Jæja, fyrst ég er kominn. Ég skal þá láta þig fá Landcruiserinn á sama verði." Augun höfðu ekki vikið af tölvuskjánum frá því ég sagði gott kvöld. Síðan fór fram upplýsingagjöf og nokkurra mínútna umræður um í hvaða gjaldmiðli ég vildi borga. Ég fékk aldrei almennilega botn í gjaldeyrisumræðuna og bað hana bara um að gera það sem hentaði henni best.
"Annað afturljósið er brotið, en annars er bílinn í lagi, ég er búinn að panta tíma á verkstæði." Ég treysti henni ekki alveg fullkomlega, svo ég spurði:
"Geturðu gefið mér gróft mat á hvað þetta kostar fyrir þrjá daga?"
"Svona 12 þús krónur". Síðan leit hún upp og horfði í augun á mér:
"En það er bara ef ekkert kemur fyrir".
Síðan var farið út á plan. Bíllinn stóð á bílastæði úr möl. Jarðvegurinn var samt talsvert blautur þannig að maður sökk niður í hverju skrefi. Ég misreiknaði mig aðeins á moldarflaginu fyrir aftan bílinn og byrjaði að draga ferðatöskuna eftir því áður en ég henti henni í skottið. Ég kveikti ljosið í bílnum og ákvað að líta aftur á leigusamninginn. Verðið stemmdi, þetta var Yaris verð, en hvergi var minnst á skemmdir á bílnum. Ég nennti ekki að standa í þessu rugli lengur. Varð bara að hafa það ef hún þóttist ekkert muna eftir þessu seinna. Rétt í þann mund sem ég var að stíga inn í bílinn renndi hún við á jeppanum og skrúfaði niður rúðuna og kallaði eitthvað sem ég heyrði ekki.
Það nauðaði í vindinum og ég rétt sá glitta í hana þar sem hún teygði sig út um gluggann. Nefið var rautt og kanínuskinnið flaksaðist til á hausnum. Ég kallaði á móti:
"Hvað segirðu?"
Hún hrópaði enn hærra:
"HANN ER DÍSEL!"

kv Kalli

4 Comments:

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home