Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Thursday, March 08, 2007

Það sem skiptir máli

Ég var að lesa það í blöðunum í dag að nýlega var gerð úttekt á því hversu margar eftirlitsstofnanir hafa heimild til þess að koma fyrirvaralaust inn á hvaða deild sem er á spítala og kanna aðstæður. Þeir sem gerðu úttektina komust upp í 60, en tóku fram að sennilega væru til miklu fleiri stofnanir, þetta væri svo mikill frumskógur að ómögulegt væri að koma tölu á þetta allt saman. Þetta er t.d. heilbrigðiseftirlitið, lyfjaeftirlitið, brunavarnir, öryggiseftirlitið, eftirlit með að réttindi sjúklinga séu virt o.s.frv.
Það er því svo að hver deild spítalans getur átt von á því að fá heimsókn frá virðulegum eftirlitsmanni á hverjum degi í að minnsta kosti tvo mánuði. Hver eftirlitsmaður skilar síðan af sér skýrslu og sendir bréf með athugasemdum til deildarstjórans sem verður að svara innan ákveðins tíma með útskýringum og loforðum um úrbætur. Það er hægt að ganga að því vísu að alltaf finnst eitthvað að; eftirlitsmaður sem ekki finnur eitthvað að hefur gert sjálfan sig gagnlausan og verður senn atvinnulaus. Í dag sá ég t.d. svarbréf til einnar eftirlitsstofnuninnar frá deildarstjóranum á minni deild. Þar var útskýrt í löngu máli hvers vegna ekki var öskubakki fyrir utan útihurðina á spítalanum; eftirlitsmaðurinn hafði sem sé tekið eftir að talsvert var um sígarettustubba fyrir utan spítalann. Þetta er einfaldlega vegna þess að það er bannað að reykja á lóðinni skv. tilskipun frá yfirvöldum, sem sennilega borga laun eftirlitsmannsins. Meira atvinnuskapandi geta tilskipanir og eftirlit yfirvalda ekki orðið: bréfaskriftir og greinargerðir um hvers vegna lögum og reglum er fylgt eftir. Ég ælta ekki að láta eftir mér að fara að bölsótast út í hversu greindarlegt það er að fara fram á það við fólk í geðrofsástandi-sem t.d. er sannfært um að það sé Jesú Kristur eða að það sé ofsótt af Frímúrarareglunni-að það hætti að reykja. Nógu erfitt er að fá það til að taka lyfin sín þótt ekki sé farið að stunda miklar forvarnir til að koma í veg fyrir hugsanlega kransæðastíflu 20 árum seinna. Allt hefur sinn tíma.
Ég hef reyndar lúmskt gaman af sumu eftirlitsstarfinu sem fer fram. Það vill nefnilega oft fréttast með góðum fyrirvara áður en þeir koma, hvers vegna veit ég ekki. Ég veit alltaf upp á dag hvenær von er á heilbrigðiseftirlitinu. Þá er ég látin vita undir fjögur augu og farið yfir hvað ég þarf að gera. Það er t.d. nauðsynlegt að ganga með lítinn sprittbrúsa í beltisstað til að maður geti sprittað hendurnar eftir að maður hefur komið tekið í hendina á einhverjum sjúklingnum, en enginn þeirra er með opið skurðsár, fæstir líkamlega veikir og í raun bara eins og hver annar maður í út í búð fyrir utan geðveikina. Allavega, ég arka um með brúsann eins og mér er sagt þennan eina dag á ári. Þegar ég hitti eftirlitsmanninn er tikkað í box. Daginn eftir fellur síðan allt í ljúfa löð aftur. Brúsarnir aftur upp í skáp eða hafðir inn í skoðunarherbergi þar sem gott er að grípa í þá. Samkvæmt eftirlitinu finnst starfsmönnum deildarinnar það vera nakið án brúsans og nota hann daglega. Enn einu markmiði yfirvaldsins náð.
Það vantar ekki targetin í Bretlandi, en þau eiga eitt sameiginlegt: Þeim er náð. Einn maður fékk t.d. þau skilaboð að ríkisstjórnin hefðu komist að þeirri niðurstöðu að sjálfsmorð væru slæm. Það var því samþykkt einróma að fækka sjálfsmorðum um tiltekinn fjölda prósenta. Samstarfsmenn þessa vesalings manns sem ætlað var að ná þessu markmiði í sínu umdæmi töldu þetta ómögulegt. Sjálsmorð eru jú mjög flókið fyrirbrigði og erfiðlega hefur reynst að stemma stigu við fjölda þeirra svo lengi sem elstu menn muna. Að ætla að einhverju targeti á einu eða tveimur árum: Útilokað. Vinur okkar dó hins vegar ekki ráðalaus. Hann pantaði skýrslur síðustu ára yfir fjölda sjálfsmorða og annarra dánarorsaka. Það vakti athygli hans að sum sjálfsmorð voru skráð samkvæmt líkum, t.d. fólk sem hafði lent í einkennilegum umferðarslysum og hafði kannski gefið í skyn skömmu áður að það myndi taka sitt eigið líf. Hér var greinilega talsvert rúm til umbóta. Hann fór á fund dánardómstjórans og sannfærði hann um að þetta væri ekki alveg nógu gott. Umferðarslys væri bara umferðarslys og ætti að skrá sem slíkt. Árið var ekki liðið þegar þessi ágæti maður hafði náð enn einu takmarkinu. Ríkisstjórnin var greinilega að ná talsverður árangri í þessum málaflokki. Það var samt sami fjöldi sjálfsmorða, jafnmargar fjölskyldur í sárum, jafnmörgum sem leið illa. En þetta leit vel út á pappírunum og þegar allt kemur til alls er það jú það sem skiptir mestu máli.
kv Kalli

1 Comments:

  • Hæ. Kalli
    Þetta minnir mig á skýrslu um fækkun ofbeldisbrota í miðborg Reykjavíkur sem gefin var út einu ári eftir að nýtt tölvukerfi, með ólíkum bókunarmöguleikum miðað við fyrra kerfi, var tekið í notkun. Glaðir kynntu menn niðurstöðurnar; fækkun ofbeldisbrota. Ekki var talað við starfsfólk slysadeildar sem upplifði mikla fjölgun ofbeldisbrota á sama tíma og bókar vettvang og meiðsli ekki síður en löggan. Það er niðurstaðan í skýslunni sem skiptir máli og engin gefur því gætur hvort hún hefur náðst með sjónhverfingum eða með yfirsjónum. Sjónhverfingamenn eru gjarnan kallaðir til stjórnunarstarfa hjá því opinbera. Ég fór á fund fyrir um tveimur árum þar sem fjálglega var talað um að fækka sjálfsvígum og nýtt þjóðarátak kynnt.Nú skyldi tekið á málunum, aðgengi að geðdeidum bætt og stuðlað að vitundarvakningu meðal þeirra sem koma að málum fólks í áhættuhópum, enda sjálfsvíg dauðans alvara. Síðan hef ég ekkert heyrt frekar af átakinu né get ekki séð að sjálfsvígum hafi fækkað. E.t.v. gengur þetta allt út á það að "það sé verið að vinna í málinu". Hattur sjónhverfingamannsins er ótæmandi en sýningarnar ekki allar jafn geðslegar.

    Einar, pabbi.

    By Anonymous Anonymous, At Friday, 09 March, 2007  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home