Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Friday, March 09, 2007

Framfarir á 21. öldinni

Nú er verið að gera breytingar á þjálfun unglækna í Brelandi. Þegar ég heyrði fyrst af þessu á síðasta ári var alveg borðleggjandi að þetta yrði eitt allherjarklúður. Nú er komið á daginn að þetta er einn alsherjarskandall.
Það sem átti að vera svo frábært við þetta allt saman var að allir áttu að sitja við sama borð, ekkert svigrúm til að mismuna fólki eftir kynþætti, kyni eða neinu. Þú sækir bara um á netinu, fyllir út umsóknareyðublaðið og skrifar síðan stuttar ritgerðir um t.d. "Af hverju ég ákvað að verða læknir", eða "Þegar ég gerði mistök og hvað ég gerði í málinu". 99% af umsækjendum neyðast til að semja einhverjar sögur um þetta sem eiga litla stoð í raunveruleikanum. Ég sá umsóknareyðublaðið hjá einum kollega mínum um daginn. Ein ritgerðin byrjaði einhvern vegin svona: "Þegar ég var 7 ára veiktist amma mín...". Síðan veiktust fjölskyldumeðlimir einn af öðrum og félaginn þerraði ennið á þeim öllum með blautum þvottapoka. Svo endaði þetta náttúrulega með því að viðkomandi ákvað að verða læknir. Ef ég væri í panel að taka viðtal við mann með svona Móður Teresu komplexa, þá væri mín fyrsta spurning af hverju viðkomandi væri ekki í Afríku að bjarga börnum sem eru að deyja úr niðurgangi.
Já, þetta fór allt í vitleysu.Tölvukerfið réð ekki við allar umsóknirnar. Hæfir einstaklingar fengu ekki einu sinni viðtal og sumir fengu óvænt boð um að koma í viðtal fyrir störf sem þeir sóttu ekki einu sinni um. Það er vaðið yfir fólk frá Indlandi, Pakistan og öðrum löndum sem ekki eru hluti af EU eða EEA á skítugum skónum. Þetta fólk er yfirleitt með dvalarleyfi til tiltekins tíma og það er notað til að neita því um starf, en framlenging dvalarleyfis er formsatriði ef þú hefur starf. Þannig er fjöldi fólks með fjölskyldur og húsnæðislán sem búið hefur í Bretlandi árum saman atvinnulaust og senn án dvalarleyfis. Þetta er fólk sem var upphaflega ráðið vegna þess að það vantaði lækna í Bretlandi og svona er þeim þakkað fyrir. Dæmi eru um að fólki frá Indlandi og Pakistan sem átt hefur eitt ár eftir af sérnáminu hefur verið boðið að vinna launalaust þar til þau fá full réttindi sérfræðings. Sumir hafa tekið þessu boði.
Síðast þegar ég heyrði var búið að skipuleggja kröfugöngu unglækna þann 17. mars og talað um verkfall þann 4. apríl. Þetta er fáheyrt. Unglæknar hér hafa greinilega engu að tapa lengur.
Þar sem ég mun senn yfirgefa landið er mér orðið óhætt að segja hluti án þess að óttast brottrekstur.
Eitt af targetunum sem Verkamannaflokkurinn setti á var að 96% sjúklinga sem fara í gegnum Bráðamóttökur verði að vera útskrifuð þaðan innan 4 klst. Þetta hefur tekist víðasthvar með ýmsum aðferðum.
Vinsæl aðferð er að búa til nýja deild innan bráðamóttökunnar, sem er kölluð eitthvað annað t.d. Eftirlitsdeild. Þegar einhver er um það bil að brjóta 4 klst. regluna er honum rúllað nokkra metra yfir þessa nýju deild, sem alltaf var Bráðamóttakan en heitir nú eitthvað annað. Sömu læknar og hjúkrunarfólk halda síðan bara áfram að gera það sem þarf að gera án þess að þurfa að hafa áhyggjur af tímanum. Á þeim stöðum þar sem ekki er svigrúm til að gera nýja deild innan BMT hefur sumstaðar verið ráðist í það að byggja skúra á bílaplaninu fyrir utan, sem að sjálfsögðu er þá ný deild.
Það þarf ekki að taka það fram að þeir sem mest af öllum brjóta þessa reglu eru geðlæknar. Þeir eru svo takmarkaðir að þeir geta ekki metið andlegt ástand fólks sem er undir áhrifum áfengis eða fíkniefna og þurfa því stundum að bíða klukkutímum saman eftir að renni af fólki. Geðlæknar eru því þyrnir í síðu framkvæmdastjórana sem þurfa að skila sínum skýrslum. Framkvæmdastjórarnir eru skiljanlega stressaðir yfir þessum reglum vegna þess að ef einhver er meira en 12 klst á BMT þá er heilbrigðisráðuneytið látið vita svo fljótt sem auðið er. Ef þetta gerist er framkvæmdstjórinn kominn í hús med det samme, og skiptir þá engu máli hvað klukkan er, starfið er í húfi.
Þessar reglur eru ekki sjúklingum alltaf til góðs, nema síður sé. Þegar ég var nýbyrjaður að vinna hérna heyrði ég sögu af einu kollega mínum á spítalanum sem var kallaður á BMT. Þar voru nokkrir sem biðu. Hann ætlaði að sjálfsögðu að byrja á því að tala við þann sem hafði beðið lengst, gamla konu á áttræðisaldri sem hafði fótbrotnað. Hann var hins vegar stoppaður af og beðinn um að sjá annan fyrst sem hafði beðið mun skemur. Þetta var vegna þess að gamla konan hafði, án þess að hún hefði hugmynd um það sjálf, brotið 4 klst regluna og var því orðin nokkurs konar skemmd vara. Betra var fyrir spítalann að sjá til þess að næsti maður myndi ekki brjóta regluna líka, gamla konan gat beðið nokkra klst í viðbót, enda 8 klst í 12 klst markið.
Er það furða að menn geti orðið pirraðir á þessu?

3 Comments:

  • Ég er viss um að breskir embættismenn falla fyrir "þvottappokalýsingunum" enda voru þeir álitnir hvað best til þess fallnir að taka út starfsemina á Lsp og gera tillögur til úrbóta ef ég man rétt.

    Ég er á því að menn hafi eitthvað villst af leið sem upphaflega ætluðu að fara að dæmi Livingstone og Albert Schweitzer og lækna svört börn í Afríku þegar þeir eru komnir út í lýtakækningar á ríku lýtalausu fólki og flokka það undir lækningar.

    Gangi þér vel í göngunni, stéttvísin hlýtur að leiða þig þangað?

    Einar

    By Anonymous Anonymous, At Friday, 09 March, 2007  

  • hæhæ
    Eftir þessa lesningu get ég ennþá betur skilið af hverju þið eruð að fara heim.....
    Vona bara að þetta sé eitthvað skárra heima á Fróni!!

    kv.
    Anna Björg

    By Anonymous Anonymous, At Friday, 09 March, 2007  

  • Já, sammála Önnu.
    Svona viltleysa getur gert mann sturlaðann. Þessi bráðamóttöku farsi væri besta efni í nýja sápuóperu, já eða jafnvel skáldsögu. Þú ert nú fínn penni, nú ertu kominn með hugmynd af góðu efni...allavegna fyndnu efni.

    By Blogger Fnatur, At Tuesday, 13 March, 2007  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home