Áramótarkveðja
Við hjá Bromleytíðindum viljum óska lesendum gleðilegs árs með þökk fyrir gamla árið. Ritstjórnin hefur verið í góðu yfirlæti í sólinn á Florida síðustu daga í góðra vina hópi.Dagarnir hafa mikið gengið út á það að dekra við yngri kynslóðina og njóta þess að vera saman í stresslitlu umhverfi í góða veðrinu. Í stað hefðbundinna jólaboða höfum við litið inn til Mikka Mús og félaga. Við höfum reyndar ekki enn vanist tímamismuninum sem lýsir sér þannig að Kalli litli vaknar enn klukkan þrjú á morgnana útsofinn og vill fá morgunmat. Óðinn er þó orðinn sjóaðri og er til dæmis í þessum töluðu orðum á körfuboltaleik Orlando-Miami Heat þó að klukkan sé að ganga fjögur á enskri klukku.
Það er hálf súrealískt að vera í 27 stiga hita á jóladag úti í sundlaug í boltaleik við börnin en verð ég að viðurkenna að það er ósköp notalegt og gæti vel vanist.
Við gleymdum að senda jólakortin í ár, við skrifuðum þau reyndar, settum í umslög en lengra komust þau ekki. Viljum við biðja hlutaðeigandi velvirðingar, við höldum þó að allir þeir sem áttu að fá jólakveðju þetta árið sé fullkunnugt um hversu vænt okkur þykir um ykkur og erfi það ekki.
Bestu kveðjur í bili,
Ásta
Það er hálf súrealískt að vera í 27 stiga hita á jóladag úti í sundlaug í boltaleik við börnin en verð ég að viðurkenna að það er ósköp notalegt og gæti vel vanist.
Við gleymdum að senda jólakortin í ár, við skrifuðum þau reyndar, settum í umslög en lengra komust þau ekki. Viljum við biðja hlutaðeigandi velvirðingar, við höldum þó að allir þeir sem áttu að fá jólakveðju þetta árið sé fullkunnugt um hversu vænt okkur þykir um ykkur og erfi það ekki.
Bestu kveðjur í bili,
Ásta

4 Comments:
Blessuð öll.
Biðjum að heilsa. Þökkum liðið og megi ykkur ganga allt í haginn á nýju ári.
Gleðin í USA hlýtur að vera fölskvalaus þar sem búið er að hengja ljóta kallinn í Írak í beinni útsendingu. (Þú skalt ekki mann deyða segir í bókinni góðu sem menn vitna gjarnan í, svona þegar það hentar þeim). Hann hefði sjálfsagt verið náðaður ef hann hefði verið fiðraður eins og jólakalkúnninn, vinur Bush.
Nú hljóta að taka við tímar eilífs ljóss og friðar í Írak og meðal manna um heim allan, Bush var allavega búinn að lofa því og hann er óskeikull eins og allir vita. Því bið ég að heilsa honum og Jeff lita, bróður hans, í Florida.
Kveðja,
Einar, afi, og fjölskylda.
By
Anonymous, At
Sunday, 31 December, 2006
Blessuð aftur!
Vonandi ílengist þið ekki í USA. Ég vona að eftirfarandi ummæli Bush um hvað ber að laga og hvað er í vændum verði ekki til þess að þið ákveðið að setjast að í þessari paradís.
*Um byssueign og aldur til slíks*
"I think we ought to raise the age at which juveniles can have guns"
"For every fatal shooting, there were roughly three non-fatal shootings. And, folks, that is unacceptable in America. It´s just unacceptable. And we´re going to do something about it."
*Um nauðsyn menntunar*
"To those of you who recive honors, awards and distinctions, I say, well done. And to the 'C' students, I say: You too can be president."
Það er sannarlega gleðilegt ár í vændum fyrir vestan.
Kveðja,
Einar, afi
By
Anonymous, At
Thursday, 04 January, 2007
Bara ekkert plebbablogg í gangi?
Hvað er þá í gangi?
Ég held ég gangi.
Þið gætuð bloggað fram á gangi.
Um það að þið væruð á gangi.
Ferlega er maður sniðugur mhúahahahaha.
By
Fnatur, At
Tuesday, 23 January, 2007
Hafa Bromleytíðindi lagst niður á nýju ári?
By
imyndum, At
Friday, 26 January, 2007
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home