Indverskar afurðir eða heimatilbúið?
Ég hef tekið eftir því undarfarnar vikur að niðurfallið við hliðina á húsinu á það til að flæða yfir. Það vill svo sérkennilega til að affallið frá þvottavélinni, uppþvottavélinni og baðinu upp á efri hæðinni fer beint út í niðurfall sem er alveg uppvið húsið þar sem ruslið er geymt og er því ekki fyrir augunum frá degi til dags. Þegar hleypt er úr baðinu uppi getur maður því séð vatnið koma út úr veggnum og streyma ofan í niðurfallið með tilheyrandi froðu og óhreinindum.
Í gær tók ég síðan eftir því að yfirflæðið var orðið slíkt að vatn var farið að leka ofan í fiskatjörnina úti í garði þannig að talsverð froða var í tjörninni. Mér rann því blóðið til skyldunnar sem húsbóndinn á heimilinu og ákvað að gera eitthvað í málinu.
Mér var fljótt ljóst að ræsið var stíflað og virtist fullt af leðju. Ég setti því á mig gulan uppþvottahanska (átti bara vinstri), stakk hendinni ofan í ræsið og reyndi að finna sökudólginn. Ræsið var hins vegar of djúpt svo ég jós vatni úr ræsinu með gamalli ísdollu í rusatunnu sem við ætluðum að henda. Þetta var illa þefjandi skítavinna. Lyktin vandist hins vegar furðufljótt og áður en varði var mér orðið slétt sama þótt vatn skvettist á mig og ég tók jafnvel af mér hanskann og fór berhentur ofan í drulluna, enda engin dáið af því að sulla í uppþvotta- eða baðvatni þótt af öðrum sé. Verkið gekk samt helvíti seint því ræsið fylltist jafnóðum af meiri drullu og brúnu vatni og það sem mér þótti kannski merkilegast var að það var eins og einhvers konar pappamassi myndaði leðjuna. Mér datt helst í hug að pappakassar sem við geymdum við hliðina á húsinu hefðu einhvern veginn komist ofan í ræsið, leysts upp og jafnvel valdið stíflunni.
Í dag flæddi síðan aftur yfir. Ég út aftur. Sama ferlið aftur: Ísdollan, ruslafatan, hella leðjunni í safnhauginn úti í garði. Skyndilega fann ég einhvern þéttan massa ofan í ræsinu. Þetta var greinilega eitthvað sem hugsanlega gat valdið stíflu. Allþétt, samt mjúkt eins og leir og ég fann að ég gat mótað þetta með hendinni þar sem þetta var á kafi í vatninu. Áreiðanlega einhver leðja, hugsaði ég með mér. Þegar ég hafði veitt þetta upp, var þetta eins og bjúga í laginu, brúnt og fullkomlega homogen, þ.e. þegar ég tók þetta í sundur var þetta brúnt í gegn, samt með einstaka fíbrum. Þar sem ég hélt á þessu fyrirbæri með gulum uppþvottahanskanum varð mér ljóst að hér var um að ræða það sem manna á milli er yfirleitt vísað til sem mannaskítur, hægðir, manni, kúkur eða jafnvel lortur.
Ég get ekki neitað því að þar sem ég hélt á þessu sóttu að mér ýmsar spurningar: Hvernig má það vera að þetta er í ræsinu? Er þetta úr einhverjum innanhúss eða er um að ræða bakflæði úr klóhakkinu í næsta húsi, en þar býr Indverskur lyfjafræðingur á eftirlaunum? Ég get ekki sagt að útlit eða stærð hægðanna hafi gefið miklar vísbendingar. Mér virtust þetta meðalhægðir án mikilla sérkenna og gat verið jafn frá stálpuðu barni sem fullorðnum manni.
Ég fór þegar í stað inn og tilkynnti um fundinn. Allir sem ég ræddi við neituðu alfarið að hafa haft hægðir þann daginn og liggur því Indverjinn enn sterklega undir grun. Þeirri spurningu er hins vegar ósvarað hvernig það má vera að samgangur sé á milli klóhakks og venjulegs ræsis við hús sem tekur við uppþvottavatni og er í raun opið. Mér er þetta fullkomlega óskiljanlegt. Ég get samt ekki sagt að þetta komi mér mikið á óvart. Bresk hús og allt sem þeim viðkemur er yfirleitt fúsk frá upphafi til enda. Ef fylgja ætti íslenskum stöðlum þyrfti sjálfsagt að rífa um 80% húsa í London tafarlaust. Það þarf náttúrulega ekki að taka fram að fyrsta verk morgundagsins er að finna "fagmann" til að ganga í þetta mál.
kv Kalli

6 Comments:
Já þetta er pottþétt Indverjinn. Þetta hljómar ekki eins og norski ættarkúkurinn.
Þetta var allavegna pottþétt ógeðisblogg vikunnar haha.
By
Fnatur, At
Tuesday, 06 February, 2007
Oj, segi ég nú bara.
By
Anonymous, At
Tuesday, 06 February, 2007
Búið að laga stífluna, valdurinn var svona rassaþurrkur sem the BOYS notaeftir að hafa gert nr2.
Þær eru víst ekki góðar fyrir enskar pípulagnir þó að það standi á pakkanum að það megi sturta þeim niður.
Kveðja,
Ásta
By
Anonymous, At
Tuesday, 06 February, 2007
Kúkar í niðurfallið og reynir svo að kenna nágrannanum um. Skamm.
By
Anonymous, At
Thursday, 08 February, 2007
ahahaaahaaharg dásamleg greining sem gerð er af miklu æðruleysi verð ég að segja!
By
brynjalilla, At
Thursday, 08 February, 2007
Góður!
Svona á að gera þetta. Ganga í hlutina.
Eftir þessa lesningu hef ég efasemdir um að þú hafi valið rétta sérgrein. Ég er á því að þú hefðir átt að snúa þér að leyndardómum meltingarfæranna frá munni og niður að exit,endaþarmi. Já og bæta síðan við pípulögnum og holræsakerfum Lunduna allt niður að sjó. Allt þetta ferli, meltingar-og holræsatruflanir, hefur reyndar áhrif á andlega líðan fólks, ef marka má skrif þín svo reynsla í geðlækningum kemur einnig að notum við úrlausn svona mála.
Einar, pabbi.
By
Anonymous, At
Tuesday, 13 February, 2007
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home