Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Tuesday, February 20, 2007

Á heimleið

Þá er ég farinn að vinna á nýrri deild sem sérhæfir sig í lyndisröskunum. Flestir á deildinni eiga við þunglyndi að stríða sem ekki hefur svarað hefðbundinni meðferð. Þarna verð ég fram í ágúst. Ásta vinnur að baki brotnu við að ná NHS targeti sem hún verður að ná fyrir 1. apríl.
Við munum síðan flytja til Akureyrar í sumar. Ég og Ásta erum bæði komin með vinnu og erum búin að ganga frá kaupum á raðhúsi. Við erum öll full eftirvæntingar, eins og litlir krakkar sem geta ekki beðið eftir jólunum. Óðinn mun væntanlega fara í Lundaskóla sem er í mínútu labbifæri og ekki yfir neina götu að fara. Kalli fer síðan vonandi í leikskóla sem er nánast við hliðina á húsinu okkar.
kv Kalli

6 Comments:

  • Það er æði að þið séuð að flytja til Íslands, en ég er ekki viss um að þið endist lengi í fásinninu fyrir norðan.

    By Anonymous Anonymous, At Wednesday, 21 February, 2007  

  • Til hamingju með húsakaupin og ákvörðunina um flutninginn heim. Ég er viss um að það er skynsamlegt að fjárfesta á Akureyri eins og staðan er þar núna á fasteignamarkaðnum. Að auki er þarna allt til alls og stutt í sollinn í Reykjavík. Holræsakerfin þar eru mun fullkomnari en þau í London og minni hætta á heimsókn framandi, óboðinna, lorta af óræðum uppruna í niðurföllum húsa.
    S.s. allt betra en í London.

    Einar, pabbi

    By Anonymous Anonymous, At Wednesday, 21 February, 2007  

  • til lukku med thetta allt. tjad er gott ad bua a akureyri thegar madur er i theim filing. Vid komum eftir nokkur ar.

    By Blogger brynjalilla, At Wednesday, 21 February, 2007  

  • Til hamingju með Heiðarlundinn.
    Hlakka mikið til að koma í heimsókn til ykkar til AK (huhummm hvenær sem það verður).
    Það verður ljúft fyrir ykkur að komast í smá þögn og frið.

    Kv, lille

    By Anonymous Anonymous, At Thursday, 22 February, 2007  

  • Til lukku með þessa ákvörðun og að vera á heimleið. Það er eflaust frábært að búa á Akureyri. Væri jafnvel til í það. Knús, Linda.

    By Blogger Berglind Rós Magnúsdóttir, At Thursday, 22 February, 2007  

  • Hæ fjölskylda
    Gaman að heyra að þið séuð að koma á klakann. Það er ekki nema um 3 tímar að kíkja í kaffi til okkar frá Akureyri. Hlakka til að sjá ykkur, aldrei að vita hvort maður hræri ekki í köku með kaffinu.
    Kv. María Sif og fjölskylda

    By Anonymous Anonymous, At Sunday, 25 February, 2007  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home