Halló, hó, hó! Vonandi hafa jólin verið ykkur jafn skemmtileg í Flórida og þau viðraðst hafa verið flestum hér heima. Ég var að velta því fyrir mér hvernig ánægjan, jólagleðin, er mæld. Við mælum jú nánast allt í dag þessi "ánægðasta", já, "hamingjusamasta" þjóð í heimi, allavega samkvæmt einhverjum mælingum ef ég man rétt. Líklegast verður stuðst við krónutölu í þessum mælingum í ár eins og endranær, jólaverslunin jókst sjálfast um einhver prósent og verður það sjálfsagt túlkað sem aukin jólagleði. Gleðin á biðstofu slysadeildar náði sögulegu hámarki þessi jól, ölvun, slagsmál og lyfjaeitranir. Allir í stuði*. Sama sagan í heimahúsum og því nóg að gera hjá löggunni. Kjaftshögg, glóðaraugu og slagsmál. (E.t.v. hefur fjöldi þeirra sem sá Betlehemstjörnuna náð sögulegu hámarki). Tími ljóss og friðar*. Tími fjölskyldunnar*. E.t.v. hefur Jesúbarnið gleymst á einhverjum heimilum og jafnvel orðið undir pakkahrúgunni. Örvæntið ekki! því að landsmenn munu örugglega muna eftir Jesúbarninu þegar greiðslukrotareikningarnir koma eftir ármótin og þá biða feðgana báða, Jesús og pabba hans, að hjálpa sér. Svo er hægt að hlakka til páskanna, mestu hátíðar kristinna manna. Þá getum við kýlt vömbina á nýjan leik, gert okkur glaðan dag, í tilefni þess að frelsarinn lét lífið á krossinum til þess að þeir sem á hann trúa glatist ekki heldur öðlist eilíft líf*. Ekki amarelgt það. Já við munum seint gleyma Jesúbarninu, kaupmenn og prangarar munu halda áfram að halda nafni þess á lofti, fyrir okkur hin að sjálfgsögðu. Slíkur er kærleikurinn. Amen.
2 Comments:
Gott að vita af því að ferðalagið gekk vel. Góða skemmtun.
Einar
By
Anonymous, At
Wednesday, 27 December, 2006
Halló, hó, hó!
Vonandi hafa jólin verið ykkur jafn skemmtileg í Flórida og þau viðraðst hafa verið flestum hér heima. Ég var að velta því fyrir mér hvernig ánægjan, jólagleðin, er mæld. Við mælum jú nánast allt í dag þessi "ánægðasta", já, "hamingjusamasta" þjóð í heimi, allavega samkvæmt einhverjum mælingum ef ég man rétt. Líklegast verður stuðst við krónutölu í þessum mælingum í ár eins og endranær, jólaverslunin jókst sjálfast um einhver prósent og verður það sjálfsagt túlkað sem aukin jólagleði. Gleðin á biðstofu slysadeildar náði sögulegu hámarki þessi jól, ölvun, slagsmál og lyfjaeitranir. Allir í stuði*. Sama sagan í heimahúsum og því nóg að gera hjá löggunni. Kjaftshögg, glóðaraugu og slagsmál. (E.t.v. hefur fjöldi þeirra sem sá Betlehemstjörnuna náð sögulegu hámarki). Tími ljóss og friðar*. Tími fjölskyldunnar*. E.t.v. hefur Jesúbarnið gleymst á einhverjum heimilum og jafnvel orðið undir pakkahrúgunni. Örvæntið ekki! því að landsmenn munu örugglega muna eftir Jesúbarninu þegar greiðslukrotareikningarnir koma eftir ármótin og þá biða feðgana báða, Jesús og pabba hans, að hjálpa sér. Svo er hægt að hlakka til páskanna, mestu hátíðar kristinna manna. Þá getum við kýlt vömbina á nýjan leik, gert okkur glaðan dag, í tilefni þess að frelsarinn lét lífið á krossinum til þess að þeir sem á hann trúa glatist ekki heldur öðlist eilíft líf*. Ekki amarelgt það. Já við munum seint gleyma Jesúbarninu, kaupmenn og prangarar munu halda áfram að halda nafni þess á lofti, fyrir okkur hin að sjálfgsögðu. Slíkur er kærleikurinn.
Amen.
Einar,afi
By
Anonymous, At
Thursday, 28 December, 2006
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home