Komin frá Íslandi
Ég kom aftur frá Íslandi í dag, þar sem ég hafði verið frá því á fimmtudagskvöld. Ég er smám saman að aðlagast íslensku samfélagi aftur. Mér fannst sjónvarpsþátturinn hjá Jóni Ólafssyni t.d. stórgóður. Hann fékk Didda fiðlu í heimsókn sem spilaði á hausinn á sér og gamalt íslenskt langspil. Ég grét síðan með Einari Bárðarsyni, æskuvini mínum, þegar hann þurfti á sjá á eftir sínum keppanda í X factor. Ég keypti Séð og Heyrt og fannst það rosalega merkilegt að ein af Nylon systrum hefði verið á veitingahúsi í útlöndum á sama tíma og Brad Pitt, jafnvel þótt hún hefði ekki séð hann. Hún vissi samt að hann var þarna og að hann var kannski að borða sama mat og hún. Hún fékk allavega mynd af sér með kokknum sem var birt í blaðinu. Þetta var sko sami kokkur og eldaði fyrir Brad. Rosalegt!
Ég fór svo náttúrulega í fríhöfnina á heimleiðinni og keypti DVD disk með Stiklum Ómars Ragnarssonar þar sem hann tekur fyrir Norðausturland. Þegar ég kom heim skar ég niður sviðasultu, skellti Ómari í tækið og lét síðan fara notalega um mig. Þessir þættir eru fyrir löngu orðnir klassískir. Þarna var t.d. mjög áhugaverð úttekt á görðum frá landnámsöld sem voru nokkrir metrar á breidd og tugir ef ekki hundruð kílómetra að lengd. Alveg ótrúlegt þegar maður hugsar út í það; þetta var að mestu gert úr mó. Vísnakeppnin í íþróttahúsinu á Vopnafirði var líka eitthvað sem hægt er að horfa á aftur og aftur. Alþingismenn, bændur og búalir fara hreinlega á kostum í ferskeytlugerð og skellti ég nokkrum sinnu upp úr. Ég keypti líka heimildamyndina um Jón Pál í fríhöfninni. Hún var bara bísna góð og svo hjartnæm að ég átti erfitt með að gráta ekki ofan í sviðasultuna.
Nú á ég bara eftir að horfa á Trilogiu Þráins Bertelsonar, Nýtt Líf, Dalalíf og Löggulíf. Mikið á ég gott að eiga það eftir. Nú á ég bara eftir að læra að meta Spaugstofuna aftur, en mér skilst að hún hafi aldrei verið betri. Já og svo er það bara Hemmi Gunn og þá er ég bara í nokkuð góðum málum.
kv Kalli

4 Comments:
Kalli, ég fékk nú bara góða gæsahúð við þessa upptalningu. Stiklur, Séð og Heyrt, Nýtt líf, Dalalíf, Löggulíf og Spaugstofan. Þessi pistill bælir pottþétt niður alla heimþrá næstu mánuðina.
Kærar þakkir fyrir það ;)
By
Fnatur, At
Monday, 05 March, 2007
hæhæ
Gott að heyra að þú skemmtir þér!!! hehehe... Verð reyndar að vera sammála Fanneyju að þessi upptalning æsir ekki beinlínis upp heimþránna.
Takk annars fyrir góðar móttökur um síðustu helgi, það var virkilega nauðsynlegt að heimsækja ykkur og spjalla!!
við heyrumst,
Anna Björg
By
Anonymous, At
Monday, 05 March, 2007
Hemmi Gunn er klassi!
By
brynjalilla, At
Monday, 05 March, 2007
Það er gaman að sjá hve þjóðleg stemmning ríkir á heimili ykkar hjóna. Ég legg til að þið takið skrefið til fulls og hengið upp mynd af Guðna Ágústssyni yfir arininn. Leyfið ásjónu íslenskrar bændamenningar og fyndni að lýsa upp heimilið. Ég ætla að senda drengjunum leggi og öður til að leika sér að í stað Batmankalla o.þ.h. ósóma. Íslandi allt!
Aftur til fortíðar!
Einar, pabbi.
By
Anonymous, At
Thursday, 08 March, 2007
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home