stamina
Tók smá úthaldsæfingu áðan, skokkaði 30 mín úti rólega án þess að stoppa, var bara ánægð með mig. Virkilega fínt.
Dottaði í lestinni á leiðinni heim úr vinnunni og missti af stöðinni í fyrsta skiptið. Rankaði við mér í miðborg London í nettu sjokki. Það er orðið svo dimmt seinnipartinn að maður er að fara heim í lestinni í myrkri.
Var að bera saman kosti Íslands og Englands í huganum áðan þegar ég var að hlaupa. Það sem stendur uppi þegar ég hugsa til Íslands er:
1. Fólkið sem mér er annt um
2. Pizza quatro Formaggio á Eldsmiðjunni og á La Vita Bella
3. Kjarnaskógur
4. Leikskólapláss á útsöluverði
5. Laugar, að geta hitt vini sína klukkan 6 á morgnanna í ræktinni
6. Halldórsskeiðið (árleg hefð á linuskautar.is)
7. Mjólkurgrauturinn hjá Jónu systur
8. Óðalsostur
9. Öryggisnet, það að hafa fleiri en einn til að stóla á, allir sem hafa búið í útlöndum skilja hvað ég á við
10.Hlý hús
Kveðja,
Á

1 Comments:
Jú jú ég get tekið undir númer 1, 9 og 10. Hjá mér er síðan mysingur, íslensk bakarí og íslensk áramót sem að má bæta á listann minn.
Kv, Fanney
By
Anonymous, At
Friday, 04 November, 2005
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home