Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Tuesday, November 01, 2005

Halloween liðið

Í gær var Halloween, árleg hátíð hér í Englandi. Við vorum búin að undirbúa þetta vel, allar skreytingar komnar upp og flest tilbúið til að halda bara nokkuð gott partý. Vorum meira að segja búin að skera út þetta fína grasker og með nammið tilbúið er einhver skildi banka.
Á leið heim úr vinnunni fékk ég hins vegar smá símhringingu....RAFMAGNSLAUST!! Ekki bara í einu herbergi eða einni hæð heldur í öllu HVERFINU takk fyrir.
Drifum strákana í búninga og fórum beinustu leið á Zizzi og fengum okkur ljúffengar pizzur og ís í eftirrétt. Óðinn var klæddur í beinagrindabúning eins og í fyrra en Kalli litli var svartur kisi með hvítan maga.
Þegar við komum heim var rafmagnið sem betur fer komið á aftur.

0 Comments:

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home