Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Sunday, October 23, 2005

Helgarblogg

Jæja, þá er Óðinn kominn í vikufrí og fór til Íslands á föstudaginn. Við keyrðum hann til Stansted og hann fór síðan í flugfreyjufylgd og var mjög duglegur. Honum fannst skrítið að þurfa að fara svona vel klæddur, það var víst frost á Íslandi þegar hann fór.
Við lágum síðan bara í leti um helgina. Horfðum á X-factor og Desperate Housewifes og skófluðum í okkur pizzu, nammi, og fituríkum eftirréttum.
Það er komið haust og farið að kólna, fór niður í 13 gráður í dag. Kalli litli þurfti að vera með húfu og vera í flíspeysu þegar hann fór út. Í morgun hnerraði hann og sagði síðan "afsaki", ég hélt að hann væri að þróast úr frumstæðum hellisbúa yfir í séntilmann, og þá prumpaði hann bara framan í mig.
kv Kalli

1 Comments:

  • Jú jú við kvörtum og kveinum líka yfir "flíspeysu kulda" hérna. Haustið heldur betur komið og sennilega stutt í veturinn brrrrrrrrrr.Við lágum líka yfir Aðþrengdum eiginkonum (eins og þeir vilja kalla þær heima á Fróni) á sunnudagskvöldið. Ferlega er samt Susan farin að fara í taugarnar á mér með öll þessi klaufagen sín. Þetta er svona hahaha Susan hellti AFTUR niður á sig ahahahaha svaka fyndið í tuttugasta skipti.

    Kv, Fanney

    By Anonymous Anonymous, At Wednesday, 26 October, 2005  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home