Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Thursday, October 13, 2005

7/7

Fékk ábendingu frá nánum ættingja í dag að engar ´fréttir hefðu verið skrifaðar inn á Bromleytíðindi í nokkra dag. Helstu fréttir eru eftirfarandi flokkaðar eftir fólki;

Karl Einar: Er búinn að sofa uppi í hjónarúmi alla vikuna þar sem pabbi hans hefur verið á næturvöktum. Borðar hafragraut á hverjum morgni, fulla skál. Getur sagt "mimmi appú", mamma ég er búinn. Uppáhaldsorðið núna er samt ís, virðist vilja ís í öll mál.
Óðinn: Finnst gaman í skólanum og hlakkar til að fara í vikufrí í næstu viku.
Ásta: Búinn að fá nýjan tannlæknabúning sem vakti öfund og aðdáun á stofunni. Er búin að finna nýja skó sem hana bráðvantar-kosta ekki nema 400 pund.
Kalli: Nánast búinn að missa allan lífsvilja eftir 7 nætur að heiman. Stefnir að því að ná sér á strik um helgina.
kv Ásta og Kalli

0 Comments:

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home