Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Thursday, October 20, 2005

Prófið búið...

Jæja þá er ég búinn í þessu prófi. Fór til Sheffield á þriðjudaginn og prófið var kl. 4 í gær. 12 stöðvar, 7 mínútur hver. Hver stöð var í svona 2 fm3 cubicle. Haldið í Don Valley Stadium í Sheffield, heimaleikvangi rugby-liðs bæjarins. Þetta var svona frekar stressandi reynsla. 7 mínútur í helvíti 12 sinnum í röð. Leikinn sjúklingur og prófdómari í alveg sérlega litlu rými þannig að maður fann prófdómarann nánast anda niður á hálsmálið á sér. Og hvernig gekk mér? Góð spurning. Ég held að ég viti það varla sjálfur. Ég veit samt að mér gekk illa á einni stöð. Gæti hafa fallið á henni, það væri ekki ósanngjarnt. Svona 50:50 líkur held ég. En það er annað próf eftir þetta próf, og ég lærði bara heilmikið á þessu hvernig sem allt fer.
kv Kalli

0 Comments:

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home