Helgarblogg
Nú er föstudagskvöld, Óðinn fékk lánaða Playstation 1 hjá syni klinkunnar minnar og hann er búinn að spila Spyro leik í allt kvöld, rosa stuð. Ég hef fengið komment á mig í vinnunni að vera nú aldeilis ströng mamma að hafa í fyrsta lagi ekki keypt Playstation handa Óðni og í öðru lagi að hafa aldrei farið með hann í ToysRus búðina sem er risa dótabúð þar sem krakkarnir mega actually leika sér að öllu dótinu án þess að vera skammaðir af búðarfólkinu.
Á leiðinni heim í skólanum í dag vorum við fjölskyldan mikið að ræða bleika tísku hérna í Englandi, karlmenn ganga um í bleikum skyrtum með bleik bindi og litlir strákar gana kinnroðalusir í bleikum bolum. Það nýjasta á heimilinu eru bleikar karlmannsnærbuxur, alveg óvart reyndar, það hlýtur að hafa farið rauður sokkur með í þvottavélina því að núna skyndilega eiga allir í fjölskyldunni eitthvað bleikt til að fara í. (Hver hefur ekki lent í þessu?)
Mikið verð ég fegin þegar Kalli verður búinn í prófinu sínu. Fer í seinni hlutann á miðvikudaginn, fær niðurstöðu 4 vikum síðar, við lofum að birta niðurstöður á netinu.
Óðinn er byrjaður á sundnámskeiði, mjög fínt námskeið. Það eru tveir kennarar sem eru allan tíman ofan í lauginni með nemendunum og svo 4 nemendur í hópnum, þetta er því næstum því einkakennsla. Það besta er að þetta er í sundlauginni þar sem ég fer í líkamsrækt þannig að ég get farið á hlaupabretti á meðan á næstu hæð fyrir ofan og horft á hann synda á meðan ég hleyp. Fyrir þá sem vilja kíkja á heimasíðuna er slóðin:
www.amidaclubs.com/home/beckenham
Ég fór með spænska barnabók í vinnuna í dag, er í óða önn að fá hana þýdda á ensku. Ég og Marta sem er spænskur tannlæknir þóttumst vera uppteknar að fara yfir merkilegar röntgenmyndir þegar við vorum í rauninni að þýða námsefnið hans Óðins yfir á ensku til að ég gæti svo leiðbeint honum með það heima.
Svona er t.d. Meistari Jakob á spænsku:
Fray Santiago, Fray Santiago
Duermes tú,Duermes tú?
Tocan a maintines,Tocan a maintines
Ding dong dong
Ding dong dong.
Hasta la vista,
Asta

0 Comments:
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home