Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Tuesday, November 01, 2005

Aðþrengdar eiginkonur

Á laugardaginn var sett nýtt Bromleymet í sjónarvarpsglápi. Ásta gerði sér lítið fyrir og horfði á 12 (tólf) þætti af Aðþr. eigink. Hún gerði tilraun til að horfa á fleiri þætti en af einhverjum dularfullum ástæðum virkaði DVD spilarinn ekki lengur, hlýtur að vera einhver innbyggður varnarmekanismi til að varna því að fólk verði fyrir varanlegum heilaskaða af sjónvarðsglápi.
Bromleytíðindi óska Ástu til hamingju með þetta met en vona jafnframt að það verði seint slegið. Þetta gláp var samt ekki allt til einskis því að hún upplýsti betri helminginn um það að Zack (Dana) hefði í raun verið stolið og að fósturforeldrar hans hefðu drepið mömmu hans og hann var vitni að því en vegna þess að hann var svo lítill hélt hann að hann hefði drepið systur sína en seinna komst hann að því að það var ekki rétt vegna þess að líkið fannst og þá kom í ljós í það var ekki lítið barn í kistunni heldur fullorðin kona (beinagrind að sjálfsögðu, það var svo langt síðan hún dó), og síðan kom í ljós að pípulagningamaðurinn sem var nýfluttur í götuna var í raun ekki pípulagningamaður (rosalegt áfall fyrir Susan!) heldur í raun rosalega sætur og klár spæjari sem var einu sinni í fangelsi og (haldið niðri í ykkur andanum) er hugsanlega FAÐIR geðveika stráksins. Og ekki nóg með það! George lyfjafræðingurinn hafði verið að gefa manninum hennar Brie kalíum í stað hefðbundinna hjartalyfja og fékk hann í kjölfarið annað hjartaáfall. Hann grunaði hins vegar konuna sína um að hafa verið að fitla við matinn sinn, hann var víst eitthvað að halda framhjá henni (þorði ekki að biðja um SM leiki) og var eiginkonan afskaplega lítið ánægð með það.

Við auglýsum eftir fólki sem er búin að sjá 2. seríu til að svara helstu spurningum sem brenna á heimilinu:
1. Hvað verður um Zack?
2. Er maðurinn hennar Brie dáinn?
3. Er sonur hennar í raun hommi?
4. Er þetta byggt á raunverulegum atburðum?

1 Comments:

  • Þeir sem vilja ekki svörin við spurningunum hér að neðan....EKKI LESA ÁFRAM.





    Svar við spurningunum.
    1. Zack strýkur að heiman og plummerhunkinn hennar Susan er pabbi hans.
    2. Já maðurinn hennar Brie er dáinn, lyfjasalinn "vinur hennar" setti aðrar pillur í pilluboxið hans sem að drápu hann hægt. Hann er samt einhver skitz því hann fer í lygapróf og stenst það með glans.
    3. Nei hann sagðist bara vera hommi til að storka mömmu sinni og komast heim úr her-summer-camp búðunum.
    4. Já margir atburðir í þessari seríu eru byggðar á sönnum atburðum sem höfundur þáttanna hefur lent í. Dæmi: Þegar Brie sagði við son sinn þegar hann tilkynnti henni að hann væri hommi "Elskan, ég mun elska þig þó þú værir morðingi" eru viðbrögðin sem hann fékk frá móður sinni þegar hann sagði henni að hann væri hommi.
    Kv, Fanney

    By Anonymous Anonymous, At Friday, 04 November, 2005  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home