Topp 10 listi yfir það sem er óþolandi í Englandi
1. Húsin. Flest ævintýralega illa byggð og ljót. Fúsk í öllum hornum. Pípulagnir víða utan á húsunum og sumstaðar frárennsli frá klósettinu líka. Ásta fór upp á háaloft um daginn og hrundi næstum því í gegn því loftið er ekki nema 5mm spónaplata, og Ásta er ekki einu sinni feit, svona size 12 (Gæti breyst því hún er búin að borða svo mikið súkkulaði undanfarið, 3 stykki á dag!)
2. Skrifræðið. Ef maður flytur frá Íslandi til Englands og ætlar að leigja hús þá þarf maður að hafa stofnað bankareikning. Til að fá bankareikning þarf maður að hafa húsnæði í Englandi og sýna rafmagns-eða gasreikninga síðustu þriggja mánaða. Hvernig er þetta mögulegt?
3. Fyrirframþakkir í umferðinni. Fer þannig fram að þegar þú hefur ákveðið að þú ætlar að svína á næsta mann og stofna honum í lífshættu, þá veifar þú honum brosandi um leið og þú gerir það eins og fórnarlambið hafi gefið þér séns.
4. Veðurfræðingarnir í sjónvarpinu. Óþolandi, sérstaklega á morgnana þegar maður er nývaknaður og úrillur. Þarna standa þeir skælbrosandi og alltaf í óþolandi góðu skapi og reyna að vera svona skemmtilegir karakterar. "Í dag eru þrumur og eldingar..hehehe".
5. Big Cook,Little Cook. Barnaþáttur um tvo kokka sem er sýndur á hverjum einasta morgni áður en ég er búinn að drekka fyrsta kaffibollann. Annar er af eðlilegri stærð en hinn er svona óþolandi lítið kvikindi en það sem er mest óþolandi af öllu er að hann er svona mislítill. Stundum getur hann flogið um á lítilli sleif um eldhúsið og stundum getur hann haldið á miklu stærri hlutum sem hann ætti ekki að geta gert ef hann getur flogið um á lítilli sleif. Þetta er nú samt ekki verst því þeir eru báðir alltaf í rosalega góðu skapi og syngja sig í gegnum matreiðsluna ogljúka síðan þættinum alltaf með sama laginu á meðan þeir þrífa eldhúsið kátir og glaðir.
6. Fimbles. Annar barnaþáttur sem sýndur er á hverjum einasta morgni. Nokkrar fígúrur svona svipaðar og Stubbarnir. Það sem er fer taugarnar á mér við þær er að þær virðast vera prjónaðar. Hverju datt það í hug? Prjóna risastóran búning? Þær syngja líka. Einu sinni þurfi ég að horfa á heilan þátt og þá fantaseraði ég um það að hella á þær olíu og kveikja í þeim. Hafði bara nokkuð gaman af þeim eftir það.
7. Samgöngukerfið. Sumar lestirnar eru svo gamlar að það er ekki gert ráð fyrir barnavögnum í þeim. Við höfum stundum þurft að vera upp í klukkutíma í einhvers konar gripaflutningavagni sem sennilega upphaflega var ætlaður til að flytja búfénað.
8. Viðhorf gagnvart börnum. Börn í Englandi eru ekki annað en ill nauðsyn til að viðhalda samfélaginu en væri samt gott að geta sleppt því að hafa þau. Leikskólapláss 80-100 þús á mánuði takk fyrir. Hundar eru hins vegar almennt taldir æðislegir, heilu garðarnir sem ekki eru annað en risastórt hundaklósett og fólk labbandi um með hundaskít í hendinni-misstóra eftir stærð hundsins. Við höfum farið á veitingastaði þar sem hundar eru hjartalega velkomnir en börn ekki.
9. Tony Blair. Vindhani og lýðskrumari.
10. Breska konungsfjölskyldan. Þarf ekki útskýringar við.
Skrifað af Kalla, nýbúinn á 7 næturvöktum á geðdeildinni, grófritskoðað af Ástu.

2 Comments:
Þetta var slveg brilliant lesning... mikil kætni, sérstaklega fantasíurnar um Fimbles! Hló þar til kom að lið nr. 8. Þá fór viðhorf mitt á Bretlandi úr "hlægilega hallærislegt" niður í "sorglegt"!
Keep up the good grumpy ;)
Kveðja, Gunnar
By
Anonymous, At
Wednesday, 26 October, 2005
Eftir að hafa lesið hvað þú hefur gaman af Fimbles þá verð ég bara að gefa honum Karli Einari Boohbah í jólagjöf. Sá þáttur mun pottþétt verða í nýju "uppáhaldi" mhuahahaha.
Kv, Fanney
By
Anonymous, At
Wednesday, 26 October, 2005
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home