Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Saturday, November 05, 2005

Spurningalisti F-sys

Fékk þetta í pósti frá F sys:


1. HVENÆR VAKNARÐU Á MORGNANA?
Milli klukkan 5 og sex, eða þegar K. Einar elskulegi sonur minn hefur ákveðið að nú sé nóttin búin og tími til að breyta hjónarúminu í trampolín.

2.EF ÞÚ GÆTIR SNÆTT HÁDEGISVERÐ MEÐ EINHVERJUM FRÆGUM, HVER VÆRI ÞAÐ?
Donald Trump, hann gæti gefið mér góð ráð, eftirmaturinn ætti vera með Joshua Bell sem er frábær fiðluleikari.

3.GULL EÐA SILFUR?
Gull, ekki spurning, það glansar svo fallega þegar það er vel pússað.

4.HVER VAR SÍÐASTA MYNDIN SEM ÞÚ SÁST Í BÍÓ?
Wallace and G...and the ware house rabbit, barnamynd, ég fór með Óðinn+ aðra ÞRJÁ 6 ára stráka hér í bíó fyrir stuttu.

5. UPPÁHALDS SJÓNVARPSÞÁTTURINN?
Aðþrengdar eiginkonur í bili, Bodies og Scrub + X factor skora líka hátt

6. HVAÐ BORÐARÐU Í MORGUNMAT?
Glas af appelsínusafa+banana (short version)
Cheerios og mjólk (medium version)
Egg+ristað brauð+glas af appelsínusafa (long version) nammi namm
Finnst kaffi vont

7. HVAÐ LANGAR ÞIG AÐ GERA ÞEGAR ÞÚ ERT ORÐINN
STÓR?
Ekki viss, sennilega tannlæknir, væri til í að geta unnið hlutastarf til að komast í ræktina á morgnana, þarf að huga vel að bakinu á mér. Finnst gaman að fegrunartannlækningum, barnatannlækningum og kjálkaskurðlækningum.

8. GETURÐU SNERT NEFIÐ Á ÞÉR MEÐ TUNGUNNI?
Nei

9. HVAÐ VEITIR ÞÉR INNBLÁSTUR?
Fólk sem ég virði, sérstaklega fólk með mikinn aga.
Bækur
Tónlist
Náttúra

10. HVAÐ ER MIÐNAFNIÐ ÞITT?
Fiðla, var kölluð Ásta fiðla í menntaskóla,
Tannsi, er stundum kölluð Ásta tannsi
Skrýtna, sumir kalla mig Ásta skrýtna

11. STRÖND, BORG EÐA SVEITASÆLA?
Sveitasæla


12. SUMAR EÐA VETUR?
Sumar.

13. UPPÁHALDS ÍS?
Heimagerði jólaísinn hennar Fanneyjar

14. SMJÖR, SALT EÐA SYKUR Á POPP?
Salt, hver setur smjör á popp? Ógeð

15. UPPÁHALDS LITURINN ÞINN?
Svartur, blár

16. UPPÁHALDS BÍLLINN ÞINN?
Sá sem hefur mikið pláss, bilar aldrei, eyðir engu, og þarf ekki að borga bílalán af.

17. HVAÐ FINNST ÞÉR BEST AÐ BORÐA Á SAMLOKU?
Smá sýrðan rjóma í staðinn fyrir smjör, svo mjúkt avocado, smá salat, saxaðan safaríkan tómat og niðurskorið kjöt eins og kjúking, skinku eða jafnvel reyktan lunda.
Vanalega gef ég mér samt ekki tíma í þetta og þá fæ ég mér ristað brauð með marmelaði og sterkum osti. Marmelaðið þarf að vera undir ostinum.



18. HVERT FÓRSTU SÍÐAST Í FRÍ?
Júlí 2005 til Wales, dásamleg tjaldútilega í velskri sveitasælu í góðra vina hópi

19. HVAÐA PERSÓNUEIGINLEIKA FYRIRLÍTURÐU.
Fyrirlít fáa, enginn er fullkominn. Þeir sem meiða börn eru ekki hátt skrifaðir hjá mér

20. UPPÁHALDSBLÓM?
Gleymérei, minnir mig á mömmu mína

21. EF ÞÚ YNNIR STÓRA POTTINN Í LOTTÓINU, HVERSU LENGI MYNDIRÐU BÍÐA ÁÐUR EN ÞÚ SEGÐIR FÓLKI FRÁ ÞVÍ?
Myndi bara segja Kalla mínum frá því. Hinir fengju hins vegar veglegar jólagjafir það árið.

22. SÓDAVATN EÐA VENJULEGT VATN?
Venjulegt vatn.

23. HVERNIG ER BAÐHERBERGIÐ ÞITT Á LITINN?
Gult, (er í leiguhúsnæði)

24. HVAÐ ERU MARGIR LYKLAR Á LYKLAKIPPUNNI ÞINNI?
Einn, bara bíllykill, er búin að týna húslyklinum

25. HVAR ÆTLARÐU AÐ EYÐA ELLINNI?
Veit ekki, en vona að ég geti verið í standi til að vera nálægt börnunum og prjóna stingupeysur á barnabörnin.

26. GETURÐU JÖGGLAÐ?
Held ekki

27. UPPÁHALDS DAGUR VIKUNNAR?
Laugadagar.

28. RAUÐVÍN EÐA HVÍTVÍN?
Hvítvín, ekki þurrt

29. HVERNIG EYDDIRÐU SÍÐASTA AFMÆLISDEGI?
Í vinnunni um daginn og með fjölskyldunni um kvöldið

30. ERTU MEÐ LÍFFÆRAGJAFAR KORT?
Nei en ef þið haldið að þið getið nýtt mig eftir andlátið þá er það í lagi. Vil láta brenna mig og geyma öskuna á Akureyri eftir andlátið.

31. HVORT MYNDIRU VILJA EIGNAST STRÁK EÐA
STELPU?
Ekki fleiri stráka takk fyrir.

32. HVAÐ KEMUR ÞÉR Í GÍRINN?
Hvítvín og spjall við góða vini. Mér finnst frábært ef einhver nennir í alvörunni að hlusta með mér á jazz.

33. ERTU FEMINSTI?
Í réttum skilningi þess orðs: já ég held það.

34. FLOTTASTI LÍKAMSHLUTINN Á HINU KYNINU?
Vel starfandi heili. Flott bak skemmir ekki fyrir.

35. ELSKARÐU EINHVERN?
Já.

35.SEGÐU EITTHVAÐ FALLEGT UM MANNESKJUNA SEM SENDI ÞÉR ÞETTA:
Úrræðagóð, öguð, glæsileg.


36. FRÁ HVERJUM ERU MINNSTAR LÍKUR Á AÐ ÞÚ FÁIR ÞETTA SENT TIL BAKA
Grímsa

37. HVER HELDURÐU AÐ VERÐI FYRST/UR TIL AÐ SENDA ÞÉR ÞETTA TIL BAKA
AB eða Eva, stelpur ekki valda mér vonbrigðum!!

Bestu kveðjur,
Á.

PS Á meðan ég skrifaði þetta borðuðu drengirnir hálfan pott af mjólkurgraut og kláruðu lifrarpylsuna.

1 Comments:

  • Jahá...hálfann pott af grjónagraut. Það munar ekki um það.

    Er svartur í alvöru einn af þínum uppáhalds litum?
    Kv, Fanney

    By Anonymous Anonymous, At Sunday, 06 November, 2005  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home