Púff
Byrja á einnar viku næturvaktahrinu á morgun. Vægast sagt ömurlegt. Engin svefnaðstaða eins og verið hefur áratugum saman. Maður á víst að vaka þótt ekkert sé að gera. Þetta er lýsandi dæmi um það þegar stjórnendur eru ekki í jarðsambandi. Þegar maður labbar um spítalann á nóttunni eru allar kompur og eldhús full af starfsfólki steinsofandi á gólfum og stólum vegna þess að það er ekkert að gera. Fólkið er bara þarna ef ske kynni að eitthvað gerðist. Ég leggst bara eihvers staðar á gólfið - ég held meira að segja að einhver sé búinn að redda vindsæng.

0 Comments:
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home