Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Thursday, October 06, 2005

Jeansday

Á morgun er sérstakur dagur í skólanum hjá Óðni. Svokallaður gallabuxnadagur. Þá fá börnin að koma í bláum bol og eigin gallabuxum í skólann. Óðinn er mjög spenntur yfir þessu, er búin að vera hugsa um í meira en mánuð í hvaða bláa bol hann eigi nú að fara í. Verð endilega að taka mynd af honum og setja hér á síðuna. Hann er jafnvel að hugsa um að setja blátt hárgel í hárið til að vera meira töff.

Ég þyrfti eiginlega að ráða handa honum ritara, það þarf á hverjum degi að tékka á skólatöskunni hans og lesa dreifibréf, fylla út form, skrifa svarbréf við allskonar beiðnum og svo er það heimanámið. Þegar ég var í Lundarskóla Akureyrar í 6 ára bekk þá var ég varla með neitt heimanám, man varla eftir því.
Hann þarf hins vegar að lesa, skrifa og gera spellings á hverjum degi ásamt svona þemaverkefnum eins og Queen Victoría sem er núna í gangi auk spænsku. Mér finnst þetta stundum svolítið mikið en hann virðist hafa gaman af þessu þannig að ég hef ekki of miklar áhyggjur.

Klinkan mín í vinnunni á hund sem heitir Harvey sem er 1 árs gamall Golden Retriver. Hún var að spyrja hvort ég gæti passað hann fyrir hana eina og eina helgi þegar þau fara í burtu. Ég var að segja Óðni frá þessu og það var bara eins og ég hefði flýtt jólunum sjálfum!! Þvílíkt sælubros!! Óðinn er nefninlega komin á "Má ég fá hund?" aldurinn sem er vanalega frá 5 ára til 13 ára. (Er enn hjá mér)

Við vorum svo að frétta af gervisnjóbrekkum sem opna 3. desember hér rétt hjá, ætlum endilega að prófa þær líka.
http://www.thesnowpark.co.uk/


Skrapp áðan í bæinn til að kaupa sæng og þá var verið að raða jólavörum í hillurnar. Er þetta líka svona á Íslandi?

0 Comments:

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home