Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Saturday, October 08, 2005

ís ís ís ís ís.............

Kalli kom heim í morgun af næturvakt 2/7. Púslaði saman einu borði og einum stól og dormaði á því hörðu og koddalausu, var voða glaður að koma heim í morgun og sveif inn í draumaheima í sínu eigin rúmi.

Kalli litli gladdi mig í morgun með því að vakna klukkan hálf sex. Ég staulaðist með hann niður, barnatíminn ekki einu sinni byrjaður!! Þeir hafa þó vit á því að hafa auglýsingar sem svona morgunhrafnar geta horft á.

Gerði fullan pott af grjónagraut. Vinkona Tönju hafði komið í heimsókn og var svo elskuleg að kippa með sér tveimur lifrarpylsukeppum frá Goða sem ég brytjaði út í grjónagrautinn. Drengirnir voru ákaflega ánægðir með þetta, enda miklir grautarkarlar.

Kalli litli er farinn að tala örlítið meira, hættur að segja AVA AVA yfir alla skapaða hluti, kann núna að segja mimmi sem þýðir mamma, pabbi, já já, ekki, hæhæ, Ói (Óðinn) og bæ bæ. Honum finnst mjög gaman að taka upp símann og segja hæ hæ, svo fer hann að skellihlægja eins og hann sé í miklum samræðum við einhvern á hinni línunni. Í kvöld bættist svo eitt mikilvægt orð í safnið: ÍS
Hann var svo ánægður með þetta að þegar ég var að svæfa hann þá gat hann ekki stoppað að segja það og sofnaði eiginlega með þetta orð á vörunum; ís ís ís ís.....svo brosti hann bara.

Núna eru bara 70 dagar þar til við förum til Íslands, Kalli er að vinna í því að redda einni vakt sem búið er að setja hann á milli jóla og nýárs, nú hann flýgur þá bara og tekur fjárans vaktina ef enginn vill taka hana fyrir hann. Þetta er nú ekki svo langt ferðalag, bara 5 klst "from door to door".

Ætla að taka systur mína mér til fyrirmyndar og hefja jólagjafakaup snemma í ár, nánar tiltekið á morgun, óskalistar óskast sendir á netfangið mitt sem allir eiga að kunna. Við viljum helst kaupa sem flesta mjúka og litla pakka sem komast auðveldlega fyrir í ferðatösku. Fatastærðir allra barna sem eru mér nokkuð blóðskyld óskast líka með óskalistum.

Óðinn var mjög stoltur þegar hann kom heim úr skólanum á föstudaginn því að krakkarnir í bekknum höfðu kosið hann sem karlkyns fulltrúa bekkjarins. Hlutverk bekkjarfulltrúanna er að gera skólann að betri stað (to make the school a better place) og eiga þau að koma með ábendingar til skólastýrunnar og hugmyndir. Þetta virðist vera mjög virðingarverð staða þar sem sumar mömmurnar óskuðu mér til hamingju með kosningu Óðins (mér fannst jafnvel að sumar væri fúlar yfir því að þeirra börn hefðu ekki hlotið kosningu)-hvað er hægt að gera við því?? Ég gæti kannski glatt þær með því að bjóða þeim í fría Botox meðferð á stofunni hjá mér? he he. Er nefninlega að fara að skella mér á námskeið sem felur það í sér að læra að sprauta hinum ýmsu fylliefnum í andlitshrukkur. Mig vantar eiginlega tilraunadýr, þorir einhver?

Heyrumst!!
Á

0 Comments:

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home