Gæludýr
Fjölskyldan fór á McDonalds í kvöld. Við ræddum þar hvaða gæludýr við ættum að fá okkur í framtíðinni. Ásta vill fá sér hund, Óðinn vildi hund, fiska og kanínu. Kalla litla var alveg sama, hann var upptekinn við að borða Óðins ís (hann var búinn með sinn). Kalli stóri ætlar að fá sér svín með bláa slaufu. Ásta lagði til að svínið héti Snati.

1 Comments:
Ég tek undir með Óðni, fiska. Ástæður fyrir því: Þarft ekki að fara út með fiskana að ganga klukkan 6 á morgnana og á miðnætti já ekki gleyma líka yfir daginn, fiskar fara ekki úr hárum út um allt, fiskar þurfa ekki að fara í skóla og námskeið til að verða húsum hæfir, fiskar naga ekki allt sem að kjafti kemur fyrstu 5 mánuðina og þú þarft ekki að finna pössun fyrir fiskana ef þú ferð í ferðalög eða sérstök hótel sem þeir meiga vera á. Eða senda þá á rándýr hudahótel í pössun sem kosta meira en ferðalagið sjálft hjá ykkur. Jamms einnig eru fiskar að ég held töluvert ódýrari í rekstri og þeir lifa ekkert allt of lengi sem er líka plús.
Kv, Fanney
p.s. Vinkona mín fékk sér hund fyrir 4 mánuðum síðan og hún er heimavinnandi. Hún segir að þetta sé meiri vinna heldur en að vera með ungabarn. Óðinn stattu fastur á þínu með fiskana.
By
Anonymous, At
Tuesday, 15 November, 2005
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home