Ein í kotinu
Bóndinn fór til Manchester á föstudaginn, það er víst eitthvað námskeið þar í boði sem á að æfa hann undir næsta prófhluta. Get ekki sagt að mig hafi langað mikið með, fór með síðast og var ekki hrifin af borginni. Þar voru m.a. drukknar fótboltabullur sem reyndu að gefa Kalla litla snakk klukkan ellefu á laugardagsmorgni.
Við höfðum það bara kósí í kotinu, horfðum á Disney mynd um munaðarlausar gæsir og átum grjónagraut. Óðinn vildi endilega fá lifrapylsu út í, þarf endilega að biðja einhvern að senda okkur einn tvo keppi við tækifæri.
Það er loksins haust í loftinu, laufið er að falla af trjánum og ég er farin að þurfa að fara í jakka á morgnana. Setti húfu á Kalla litla í fyrsta skiptið í morgun en svo um hádegi var svo orðið heitt og þá þá var orðið stuttermabolafært aftur. Ég heyri að það sé skítkalt á Íslandi núna, það þarf að taka börnin til fyrir leikskólann á hverjum morgni eins og þau séu að fara í leiðangur á Norðurpólinn. Feginn að sleppa við þann kulda, finnst samt aðeins eins og ég sé að svindla á íslenska vetrinum með því að þurfa aldrei að vakna í myrkri á morgnana. Hérna færa þeir bara klukkuna yfir á vetrartíma þegar fer að skyggja á morgnana.
Er að lesa æfisögu breskrar hlaupakonu, bókin heitir Paula og er frábær lesning fyrir alla þá sem þurfa spark í rassinn eða hvatningu í að ná markmiðum sínum. Hún hefur aga til að hlaupa úti á hverjum degi, líka í myrkri og ísstormi þegar allir aðrir kúra sig fyrir framan arinn með kakóbolla og nenna ekki. Það að nenna ekki er einfaldlega ekki til í hennar orðabók. Hún virðist vera með mjög gott samband á milli þess hvernig hún vill lifa lífinu og hvernig hún lifir því, nánast sami hluturinn. Hver hefur ekki gerst sekur um að gæla við hugsanir "hvað ef?? og "þá myndi ég örugglega........" og lifa lífinu á einhverjum stíg þar sem þeir horfa alla æfi á annan stíg þar sem þeir vildu raunverulega vera.
Góða helgi frá einni vel hástemmdri í dag

0 Comments:
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home