Mánudagur 3. Oct.
Enn einn skemmtilegur dagur í vinnunni. Hitti konu sem finnst gaman að heilsa fólki með því að kreista á því hendurnar eins fast og hún getur - hún var nú bara merkilega sterk. Hefur reyndar einnig gaman af því að snúa upp á eyrað á fólki (grínlaust). Ég slapp naumlega, einungis snör viðbrögð björguðu mér.
Manchester var aðeins skárri en ég hélt. Miðbærinn var bara nokkuð góður og virtist bara vera gott næturlíf þarna sem ég tók að sjálfsögðu ekki þátt í því ég var bara einn þarna að dandalast.
Fyrri dagurinn á kúrsinum var fínn. Ég var í hópi með 3 öðrum og við skiptumst á að tala við leikara sem gerðu sér upp ýmis vandamál. Leikararnir voru mjög góðir, enda atvinnumenn á þessu sviði. Ég ræddi við mann með framheilaskaða, þunglyndan mann í sjálfsvígshættu sem vildi útskrifa sig heim, konu með áráttu og þráhyggju, konu með fæðingarþunglyndi svo þurfti ég að gera líkamsskoðun á manni með áfengisvandamál sem var hrein hörmung. Þetta var allt mjög gagnlegt. Seinni dagurinn var ekki eins góður, engir leikarar og við látin æfa okkur hvert á öðru. Ég lét mig bara hverfa til að vera kominn snemma heim.
Í kvöld ætla ég að æfa mig á Ástu, gera á henni heilataugaskoðun og eitthvað meira. Hún getur ekki kvartað mikið, ég gæti verið á læra kvensjúkdómafræði!

0 Comments:
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home