Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Sunday, January 13, 2008

Fullkominn morgunn




Rétt um tíu
Varla birta
Hlaupa sniglar
Allt of langt

Fjöllin vakna
Bílar sveigja
Reyni að vinka
Ekki klessa

Les á skilti
Kristnes segir
Mál að linni
Snúum við

Fætur stífir
Magi herptur
Reyni að slaka
Komin heim

10 Comments:

  • Gullfalleg mynd. Gaman að sjá nýja færslu. Velkomin aftur.

    By Blogger Fnatur, At Sunday, 13 January, 2008  

  • Takk fyrir innlitið kæra systir....

    By Anonymous Anonymous, At Monday, 14 January, 2008  

  • Jeddúdamía!!! Ertu komin til landsins OG flutt til Akureyrar. Hvað er að gerast?

    Hjördís

    By Anonymous Anonymous, At Wednesday, 16 January, 2008  

  • Hæ Hjördís, Takk fyrir innlitið!!
    Ég flutti til Akureyrar sl sumar eftir 3gja ára dvöl í Englandi.Ég er að starfa á tannlæknastofu í Kaupangi, líkar vel.
    Kemur þú á 20 ára Gagga reunion í sumar??
    Kær kveðja,
    Ásta

    By Anonymous Anonymous, At Thursday, 17 January, 2008  

  • hæ skvísan mín, falleg mynd og skemmtileg stemming sem ljóðið fangar, hlakka til að sjá fleiri færslur, knús í hús
    Brynja

    By Blogger brynjalilla, At Friday, 18 January, 2008  

  • Ekkert að gerast í Bromley?

    By Blogger Fnatur, At Saturday, 02 February, 2008  

  • Flott mynd og flott ljóð.... hver er höfundur?

    kv.
    Anna Björg


    p.s. gaman að heyra frá ykkur aftur!!!

    By Anonymous Anonymous, At Saturday, 02 February, 2008  

  • Brynja þakka þér fyrir að muna eftir Bromleytíðindum, mér skilst að það sé eitthvert óhollustupartý á döfinni núna í júní? Er þaetta rétt?

    Kæra Anna, ég hlakka svo til að sjá þig í sumar, þetta var nú bara leirburður úr henni kerli mér sem datt út úr puttunum á mér á 30 sek (það er munur að vera komin af Jónasi Hallgrímssyni)-er að æfa fyrir London Maraþon þessa dagana.... LUV Asta

    By Anonymous Anonymous, At Sunday, 03 February, 2008  

  • nei ekkert óhollustupartý, gyðjupartý hinsvegar og djö...öfunda ég þig að vera að æfa fyrir london maraþon, hvað er það langt sirka? Gæti kannski sett það á lífslistann minn sko. Annars þá finnst mér þessi morgun búinn að vera ansi langur hjá þér, blikk, blikk

    By Blogger brynjalilla, At Friday, 22 February, 2008  

  • Ertu búin að gefast upp sys.........koma svoooo you can do it.

    By Blogger Fnatur, At Saturday, 23 February, 2008  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home