Kanínurnar fá ný heimkynni
Ég fór með kanínurnar, Lubbu og Tobbu, aftur í gæludýrabúðina í dag. Búðin er með Adoption center þar sem góðviljað fólk getur komið og tekið að sér dýr sem aðrir geta ekki lengur séð um. Þetta var skásti kosturinn í stöðunni. Einn möguleiki hefði verið að sleppa þeim út í skóg, en þá hefðu þær verið étnar af refum fyrsta sólarhringinn. Ég hefði líka getað haft þær í matinn, en það er bara of mikið vesen akkúrat núna. Ég hefði getað farið með þær til dýralæknis og látið svæfa þær, en ég bara tími því ekki. Ég hefði getað fargað þeim sjálfur heima, en öll verkfærin mín, þar á meðal hamarinn, fóru heim með gámnum. Svo hefðum við náttúrulega getað tekið þær með heim sem ákveðnir aðilar agiteruðu fyrir, en það er bara tóm bilun (sorry Ásta).
Þá er bara að vona að þær eigi gott líf fyrir höndum í Englandi.
kv Kalli
Þá er bara að vona að þær eigi gott líf fyrir höndum í Englandi.
kv Kalli

11 Comments:
Kalli!
Fórstu fram á að öll tengsl við fyrri uppalendur, foreldra, verið slitin, máð út, svo að Lubba og Tobbi geti ekki vitjað ykkar ef þeim líkar ekki vistin ?
Svona aðskilnaði getur fylgt trauma sem erfitt getur orðið að vinna úr með öðrum ráðum en uppskriftum úr matreiðslubókum.
Enn einn möguleikinn hefði verið að láta stoppa kvikindin upp en það hefði sjálfsagt orðið dýrasti kosturinn.
Blessuð skinnin, já blessuð skinnin.........
Einar, pabbi.
By
Anonymous, At
Wednesday, 18 July, 2007
Ég held að eina leiðin til að græða sárin sé að fá hund. Sá YNDISLEGA Golden Retriver hvolpa hérna auglýsta. LOVE Ásta
By
Anonymous, At
Wednesday, 18 July, 2007
Mér yfirsást einn möguleiki, sem felur í sér flesta kostina sem ég taldi upp. Ég gæti farið aftur í gæludýrabúiðina, ættleitt kanínurnar, farið með þær til Íslands, drepið þær með hamrinum (smá högg á hausinn ætti að duga), haft þær síðan í matinn og notað restina til að stoppa þær upp.
Varðandi hundinn, þá hef ég tekið þá afstöðu að vera á móti því að eignast hund nema ég megi velja tegundina. Ég er reyndar nú þegar búinn að velja tegundina.
kv Kalli
By
Bromley, At
Wednesday, 18 July, 2007
Er minn nokkur að breytast í vondingjameistara á næturvöktunum?
Sæki þig KANNSKI á flugvöllinn,
LOVE 'ASTA
By
Anonymous, At
Wednesday, 18 July, 2007
Sko, þessar kanínur eru örugglega nú þegar ættleiddar og komnar til síns heima í Tewkesbury (eða eitthvað svoleiðis) sem er vonandi kirkjan sem er enn á þurru landi. Þetta gefur þér vonandi hugmynd að einu í viðbót til að gera við kanínurnar.
En ég auglýsi hér með eftir símanúmeri Ástu. Kostur númer tvö verður að kíkja á ja.is og númer þrjú að hringja eftir minni í eldgamla númerið 6990352... en kannski er það gamla númerið mitt. Ég veit ekki. Kveðja, Heiðrún
By
Anonymous, At
Tuesday, 24 July, 2007
Get reddað ykkur nýjum kanínum ef þið viljið fá nýjar á Íslandi
Kv. Helga
By
Anonymous, At
Saturday, 28 July, 2007
Halló Akureyri!
Það breyttist allt þegar þau fluttu í bæinn, hjónin frá Bromley. Meira að segja siðferðis- og ábyrgðarvitund bæjarstjórans. Hunda-og unglingahald var bannað með einu pennastriki lastahelgina miklu sem búið var að skipuleggja. Menn sátu nú heima og stigu gömlu stofuorgelin og sungu sálma eftir að húsbændur og hjú höfðu lesið húslesturinn í stað þess að leita í sollinn. Halleluja Akureyri í stað Halló Akureyri.Frelsesarmen rokkaði órafmagnað á ráðhustorginu og söng uppúr ritningunni. Það áttu sér ekki stað óvelkomnar þunganir á tjáldstæðum staðarins þessa helgi. Ef einhver hefur frjófgast er það fyrir áhrif heilags anda. Sannkölluð vitundarvaknin. Ég verð að fá að upplifa þessa stemmningu á næsta ári þegar búið verður að koma fyrir e.k. betlememsstjörnu á ráðhústorginu enda ekkert annað við hæfi í bæ hinna vammlausu.
Bersyndugur en vongóður,
Einar, pabbi.
By
Anonymous, At
Tuesday, 04 September, 2007
Hafa Bromleytíðindi lagt upp laupana?
Ég er farinn að sakna frétta frá tíðindamanni Bromleytíðinda á Akureyri.
Hvernig er tann- og geðheilsu háttað fyrir norðan?
Er samband þar á milli?
Ríkir sama bjartsýni þarna og í höfuðstaðnum þar sem menn eru nú sektaðir fyrir að kasta af sér þvagi á almannafæri eða sýna aðra andfélagslega hegðun?
Hér er beitt viðurlögum, sektum, enda gengur svona hegðun gegn lögreglusamþykkt.
Ætli krónískur þvagleki geti komið mönnum í kast við lögin?
Æ hvað þetta hefur aukið mér öryggiskennd. Nú er ég farinn að þora í miðbæinn aftur þar sem dónakallar og rónar fá ekki lengur frið.
Kveðja úr höfuðstaðnum,
Einar , pabbi.
By
Anonymous, At
Tuesday, 18 September, 2007
Halló!
Mig langar að stinga upp samkeppni um nýtt nafn á Brolleytíðindi enda hefur ritstjórnarskrifstofan flust norður undir 66. breiddargráður. Mér finnsts að nafnið verði að eiga sér e.k samsvörun í andrúmsloftinu þarna fyrir norðan. Hinni andlegu fegurð sem fæst með digðugu líferni og því að banna það sem getur verið óþægilegt.
Vottarnir eru búnir að tryggja sér nafnið "Varðturninn" á sitt blað.
Hjálpræðisherinn er búinn að tryggja sér nafnið "Herópið".
Mér dettur í hug t.d. "Ljósberinn". Það gæti átt vel við. Ritstjórinn gæti gengið undir gælunafninu "Maðurinn með lampann". Lampann sem kastar ljósi að það sem skiptir máli í samfélaginu fyrir norðan. Mér er alvara,full alvara.
Ég hlakka til að lesa fyrsta ritsjórnarpistilinn í Ljósberanum því ég veit að hann verður græðandi fyrir sálina, já og samfélagið.
Amen,
Einar ,pabbi.
Bugaður í borg lastanna,Reykjavík.
By
Anonymous, At
Monday, 24 September, 2007
Akureyrartíðindi?
By
Anonymous, At
Monday, 01 October, 2007
Akureyrartíðindi? Fyndinn ertu.
Nei, alls ekki Akureyrartíðindi.
Það stafar ekki birtu og ljósi frá þessu heiti og er því ekki nógu lýsandi fyrir andrumsloftið, birtuna og ylinn, í þessu bæjarfélagi.
Ég væri til í að fara út í buisness með ykkur hjónunum. Markaðssetja Akureyri sem "hamingjubæ" og stilla honum upp á móti markaðssetningunni á t.d. Hveragerði, heilsubænum/bælinu.
Slagorðið gæti t.d. verið " Heimsæktu Akureyri og höndlaðu hið eilífa bros". Væmið, en vel seljanlegt döprum og desperat.
Meðferðin væri síðan fólgin í viðtalsmerðferð hjá Kalla og kosmetískum
bros-postulínsaðgerðum hjá Ástu auk gönguferða í Kjarnaskógi þar sem þátttakendum yrðu sýndar hamingjukanínur. "Ef þú sérð kanínurnar hefur meðferðin tekist".
(Við sleppum nokkrum tömdum með góðum fyrirvara).
Einfalt eins og allt sem hægt er að selja leitandi fólki.Mér finnst ekkert að því að græða á því að selja fólki hamingjuna. Ó nei.
How about it?
Einar, hamingju therapisti.
By
Anonymous, At
Thursday, 04 October, 2007
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home