Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Monday, October 01, 2007

Enn um kanínur...

Öðru hverju förum við Kalli í Kjarnaskóg að skoða kanínurnar sem þar halda til. Síðast fórum við í gær. Þá spurði hann hvenær Lubbi og Tobba kæmu til okkar. Kom mér á óvart að hann myndi eftir þeim. Sagði að þær væru uppi í sveit með vinum sínum og ætluðu bara að eiga heima þar. Hann vara sáttur við það og hellti úr Bónus-salatpokanum í vegkantinn, sérstakur veislumatur fyrir kanínurnar. Ég held að hann haldi að hann eigi þessar kanínur líka. Við komumst að því í gær hvernig þær lifa af veturinn. Þær virðast halda til undir klósettunum á bílastæðinu.

K

8 Comments:

  • Skemmtilegar þessar kanínur. Börn á öllum aldri laðast að þeim. Allt frá nánast hvítvoðungum til H. Hefners.

    Eyjamenn flokka þessa sakleysingja með meindýrum og hafa heitið því að útrýma þeim úr eyjunum. Ástandið í Kjarnaskógi er vonandi ekki orðið eins alvarlegt og í Eyjum.

    Verndum allar kanínur og gleymum ekki eftirlaunakanínunum hans Hefners sem komnar eru á áttræðisaldur.

    Einar

    By Anonymous Anonymous, At Tuesday, 02 October, 2007  

  • Kanínur tengjast gjarnan sjónhverfingamönnum sem verða æ fleiri í samfélaginu. Ég fór á kaffihús um daginn og spáði í liðið:

    Það var engu líkara en hann hafi setið þarna frá upphafi.. Hreyfingarlaus og starandi út í salinn á meðan sígarettan brann í munnviki nu. Einstaka hóstakast minnti á það að hann væri í raun lifandi. Gengt honum sat fraukan og malaði í síbilju og lagði áherslu á orð sín með handapati og banki í borðið. Hún var í raun að tala við sjálfa sig því steingerfingurinn gengt henni var á öðrum stað í öðru tímabelti. En það breytti engu. Svona hafði það verið þessi 40 ár sem þau höfðu verið saman. E.t.v. var hún að reyna að minna hann á að endirinn væri í nánd og að ef marka mætti ritninguna kæmust ekki inn í dýrðina nema þau gengju í heilagt hjónaband og irðuðust þess að hafa á sínum tíma gengið lostanum á hönd. Losanum sem þau höfðu bæði gleymt. Lostanum sem hafði ekki borið ávöxt.

    Á næsta boði sat ungt hugsjónafólk og ræddu tilgangsleysið í öllu öðru en sköpuninni. Málverkið var dautt. Hugmyndalistin var komin til að vera. Fílósófían, var það sem skipti máli. Málverkið úrkynjun eins og postulínsstytturnar, kristalinn, útsaumaðir og klukkustrengirnir. Dökkhærður piltur í hópnum hafði orðið og viðmælendurnir, tvær stúlkur, á menntaskólaaldri, horfðu á hann opinmynntar, sammála, og vissar um að hann yrði brátt ,,einn af þeim stóru” í listaheiminum. Sá gat talað og fílósóferað. Sá var gáfaður. Listin snýst um gáfur, ekki pensilstrokur eða handverk. Á hiks lánuðu þær unga manninum fyrir enn öðrum bjórnum og eintal hans lyftist á enn hærra stig. Hann dæsti og sagði ,,Ég fæst jöfnum höndum við tónlist, myndlist og skriftir og er um þessar mundir á leið utan til að fá frið. Þögnin er mér allt.” Vá svona menn eru ekki á hverju strái.

    Við gluggan sátu ungir jakkafataklæddir menn með kjöltutölvur og töluðu um um viðskipti og rauðvínssmökkum. Ræddu ýmsat tegundir af þrúgum, sætt og súrt, hvítt og rautt. Vissu hvar flöskunum var stillt upp í helvítis Ríkinu, þessu einokunarapparati. Einn var orðinn listunnandi og sagði frá því hve heppinn hann hafi verið að ná til sín mynd á uppboði eftir hvað hann heitir nú aftur, það skiptir ekki öllu. Vatnslitamynd sko. Vá hann er flottur hann Ásgrímur Jensson eða Jónsson, sögðu hinir í kor og bundust fastmælum um að mæta á næsta uppboð enda mæta þar allir sem, sko, eru ,,eitthvað”.Merkilegt hver peningar gera menn gáfaða og menningarlega sinnaða, já opna fyrir alla skynjun. Þeir voru að meika það, big time, og höfðu komið sér upp einkennisfatnaði sem hæfði þeirri stöðu. Undarleg þessi markaðslögmál, framsetningin, kunningsskapurinn og heimskulegt snobbið. Nöfn hönnuða er stimpluð á vöruna eins og. fingraför hins heilaga og óskeikula skapara og verða eftirsótt og dýr fyrir vikið. Eftirsótt af svefngenglum sem skreyta sig með þeim eins og þeir hafi sjálfir verið handleiknir af guði almáttugum og þannig fyllt hóp hinna útvöldu.

    By Anonymous Anonymous, At Tuesday, 02 October, 2007  

  • Kaffihúsapistillinn átti ekki að vera anonymous.

    Kveðja, einar, pabbi.

    By Anonymous Anonymous, At Tuesday, 02 October, 2007  

  • Hæ hæ kæra kanínufjölskylda.
    Eins gott að salat pokinn var ekki úr Hagkaup (rándýr d-skoti) hehe.
    Annars legg ég til að Einar fari nú að setjast niður og skrifi skáldsögu eða smásögur.
    Virkilega gaman að lesa kaffihúsapistilinn og fleiri komment frá honum.

    By Blogger Fnatur, At Tuesday, 02 October, 2007  

  • hæhæ
    Gaman að heyra aftur í ykkur.. hélt að Bromleytíðindi væru hætt að koma út.... hahahha
    Er ekki annars ráð að skipta um nafn?
    Annars vantar mig tölvupóstinn ykkar og símanúmer?? Ég er ennþá með sama tölvupóstinn.

    bestu kveðjur
    Anna Björg

    By Anonymous Anonymous, At Wednesday, 03 October, 2007  

  • Mér finnst eitthvað svo yndislega dásamlegt að fara með salatpoka úr Bónus í Kjarna og gefa kanínunum. Ætla pottþétt að gera það næst þegar ég kem til Akureyra með krakkana...væri alveg til að fá einn fallegan haustdag á Akureyri *dæs*

    ...og velkomin aftur í bloggheima:)

    By Blogger brynjalilla, At Thursday, 04 October, 2007  

  • Hæ kæri eiginmaður, vissi ekki að þú værir farinn að blogga aftur, Hélt þú værir bara að horfa á þátt nr 55 í flugslysasyrpu BBC documentary eftir að ég hafði sofnað fyrir klukkan níu eins og oft er orðið. LOVE Læknisfrúin
    ps Anna ég er alltaf með sama gamla hotmailinn sem ég stofnaði á læknagarði fyrir 13 árum síðan (tannlaeknir@hotmail.com) og númerið er 462-1760.

    By Anonymous Anonymous, At Thursday, 04 October, 2007  

  • Það er bara svona. Maður fer bara að geta gefið kommentin út á bókarformi. Og..ég var næstum því búinn að kaupa víkingalottómiða í Hagkaup, hársbreidd frá milljónum.
    Spurning um nafnbreytingu Sniglapósturinn (af Brekkusnigill...of djúpt?), Brekkutal, Eyrarfréttir, Eyrartal, Eyrnamark, Kanínufréttir,....aðeins að spá í þetta
    kv K

    By Blogger Bromley, At Thursday, 04 October, 2007  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home