Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Saturday, October 06, 2007

Kk/kvk?- Dúr/moll?

Ég hlustaði í vikunni á hluta af fyrirlestri í tónfræði. Kennarinn var að útskýra muninn á dúr og moll. ..Sko dúr hefur stóra þríund, moll hefur litla þríund, er svona aðeins sorglegri. Svo er dúr svona sterklegur en moll getur haft mörg afbrigði; laghæfur,hreinn eða sönghæfur. Moll er svona eins og kvenkyns, með mörg skapbrigði en dúr svona karllegur, einfaldur. Litlu krakkarnir horfðu hvert á annað, já við reynum að muna þetta svona.... dúr, hreinn sterkur, moll sorglegur,margbreytilegur.... hvers konar kennsla er þetta?

6 Comments:

  • Dúrinn kaldur, sterkur og einfaldur,þ.e.karlkyns.!

    Hvers kyns er þessi kennaranefna eiginlega?

    Moll svona skapbrigðaríkur,laghæfur,hreinns eða sönghæfur, þ.e.svona kvenkyns.
    Að sjálfsögðu!!

    Þessi innræting er runnin undan rifjum femínista,það er deginum ljósara. Þeir liggja hvarvetna í leyni.

    En hvað þetta er dæmigert,og low. Byrjað á börnunum!
    Hugsa sér!
    Undirförul innræting.
    Ég á ekki orð og þá er fokið í flest skjól.

    Ætli jafnréttisráð viti af þessu?

    Einar,
    karllelgur og einfaldur, Svei!

    By Anonymous Anonymous, At Wednesday, 10 October, 2007  

  • Einar, hvernig í ósköpunum kemstu að þeirri niðurstöðu að svona lýsing á kynjunum þurfi að vera runnin undan rifjum femínísta? Kynjastaðalmyndir sem þessar er einmitt eitthvað sem ja allir femínistar sem ég þekki eru að reyna að berjast gegn.

    By Blogger Berglind Rós Magnúsdóttir, At Sunday, 14 October, 2007  

  • Hvenig ég kemst að þessari niðurstöð?
    Af kynnum mínum af femínistum og þeirra nótum í gegnum árin!

    Nei, í alvöru. Auðvitað er ekki nokkur meining að baki þessum skrifum en þau höfðu tilætluð áhrif. Ef vikið að að femínistum í ræðu eða riti getur maður verið viss um viðbrögð, jafnvel þegar það skín í gegn að ekki er alvara að baki.

    Mér finnst ekkert athugavert við að kennari nota líkingamál sem þetta í kennslu og útskýringum á blæbrigðum, kvenlegt og karllegt. Öfugt við femínista.

    Reyndar hefur nér sýnst þessi barátta femínista gegn kynjastaðalmyndum undarleg á köflum og átta ég mig ekki á því hvert þeir stefna, sumir allavega.

    Kynjastaðalmyndir! Stéttastaðalmyndir er nokkuð sem ég hef frekar áhyggjur af á Íslandi í dag en kynjastaðalmyndir.
    Jafnréttisumræðan ætti frekar að taka mið af því sem er að gerast í þessari paradís peningamanna (dugnaðarforkanna ef marka má umræðuna), karla sem kvenna og ört stækkndi hópi öreiga (þeirra lötu að mati sama fólks). Ég er viss um að Bríet mundi beita sér þar líka ef hún væri enn á meðal vor.

    Vá, ég var næstum búinn að gleyma þessu: SÖMU LAUN FYRIR SÖMU VINNU (KARLAR SEM KONUR, AÐ SJÁLFSÖGÐU).

    Einar, alvarlegur að vanda.

    By Anonymous Anonymous, At Monday, 15 October, 2007  

  • Ég er að reyna að vera fordómalaus, opinn og tilbúinn til að hlusta. Ég tel að í uppeldinu hafi mér verið innrætt umburðarlyndi og virðing fyrir öðru fólki. Hvernig mér hefur svo tekist að tileinka mér það sem fyrir mér var haft verða aðrir að dæma um. Ég hef lagt mig eftir því að reyna að fylgjast með því sem er að gerast í þjóðfélaginu og eru réttindamál þar á meðal. Hef ég ávallt stutt samkynhneigða í báráttu sinni og tekið upp hanskann fyrir þá ef á þá er hallað. Það sama gildir um ýmsa aðra hópa sem hafa átt undir högg að sækja og er ég eindreginn stuðningsmaður þeirra sem berjast fyrir launajafnrétti kynjanna o.s.f.v. Fór ég í morgun inn á síðu Feminista þar sem m.a. er fjallað um ýmsar nefndir sem starfa að hinum og þessum málum á vegum félagsins. Þar er m.a. karlahópur eins og sjá má hér fyrir neðan:

    Karlahópur (femínisma- og karlahópur)
    Hópur kvenna og karla, femínista, sem vinnur að því að fræða karla um femínisma; samþætting karla femínista inn í hina málefnahópanna. „Sannir karlmenn eru femínistar" sem láta sig varða allt sem viðkemur misrétti kynjanna.

    Ráðskona núna:
    Gísli Hrafn Atlason mannfræðingur 8468509 gislihrafn@simnet.is

    P.S.
    Mér finnst baráttan komin eitthvað af leið þegar karlmennirnir sem leiða starfið eru kallaðir ,,ráðskonur" í félaginu en hvað veit ég.
    Áfram stelpur (af báðum kynjum). Enn er töluvert í land!

    Einar, eða Einara, Einarína, eða hvað menn vilja kalla mig. Mér er alveg sama.

    By Anonymous Anonymous, At Wednesday, 17 October, 2007  

  • Árunum í kringum 1980 var ekki búið að skilgreina það sem nú er kallað kvenhatarar hvað þá femínista. Menn voru bara með mismunandi mikinn kjaft en allir voru kallaðir eðlilegir - nema þeir sem voru "vistaðir einhversstaðar". Svona var einfaldleikinn í fyrirrúmi á Akureyri í gamla daga - og jú, örugglega víðar.

    Þegar ég var að læra muninn á dúr og moll þá var ég líklega 11 ára; það var verslunarmannahelgi; ég var á Laugum í Þingeyjarsýslu. Með foreldrum í ferð; elsta systirin fékk að fara í sérferð þessa frjálsu ferðahelgi frónbúans.

    Þá hitti ég einn af þessum sem voru þá bara kallaðir hressir karlar með kjaft en hefðu líklega í dag verið kærður fyrir niðrandi ummæli um allt kvikt nema hvíta aría. Þetta var gítarfiktari sem söng "Hvað er svo glatt sem góðra vina fundur?" í mikilli rokkútgáfu. Á þessari stundu ákvað ég að læra á gítar; mér fannst þetta eitthvað spennandi. Umræddur gítarfiktari sá að ég stóð álengdar og fylgdist með hvernig hann hélt uppi stuðinu og var ekki lengi að grípa athygliskornið sem ég gat hugsanlega veitt honum; hann gekk til mín og spurði: "Langar þig að verða gítarhetja..." Svo bætti hann strax við: "...eins og ég?". Mér fannst eitthvað undarlegt við tengingu andlags og frumlags en yppti öxlum og jánkaði, svona fyrir augnablikið. Þá kom frá þessum andans tónmenntakennara hin víðfræga útskýring á dúr og moll sem ég hef ekki gleymt síðan. Gítarfiktarinn sagði að það eina sem maður þyrfti að kunna væri hvort lag væri í dúr eða moll... hinu myndi maður redda. Og hvað er þá þetta "dúr" og "moll", spurði ég? "Jú, sko. Dúr er eins og að gera það almennilega og keddlingin er í banastuði en moll er þegar tuskan er í einhverju andskotans meyjarhofs-stuði og þykist ekki nenna að hlýða því sem hún á að hlýða".

    Þetta var örugglega orðað á ögn grófari máta en með árunum hefur sagan mildast í huga mér og ég hef týnt niður hinu ögrandi orðfæri gítarfiktarans. Alla vega man ég eftir því að þegar þessi fræðilega skilgreining hafði hrotið af vörum fiktarans þá tók við sá allsvakalegasti hlátur sem ég hef heyrt úr barka manns. Honum þótti þetta víst mjög fyndið. Ég veit ekki alveg með hversu fyndið þetta var en eftirminnilegt var þetta.

    Kv. Hallgrímur

    By Anonymous Anonymous, At Saturday, 20 October, 2007  

  • Mér finnst þetta vera góð, já og lærdómsrík, frásögn.

    Þessi "gítarkennari" er eftirminnilegur og "námsefnið" hefur komist til skila. Bestu kennarar sem ég hef haft höfðu getu, hæfileika, til að koma efninu til skila á áhugaverðar og myndrænan hátt, impróviseruðu að eigin vild, en þeir lélegu voru allir steyptir í sama mót, andlausir með öllu þrátt fyrir ýmsar gráður. Reyndar var minn besti kennari réttindalaus en bjó yfir þessari "gáfu" sem allt og fáir kennarar hafa í dag.

    Ég held að margt gott kennaraefnið hætti sér ekki út í kennslu í dag eða hafi ekki áhuga þar sem ýmis boð og bönn hreinlega fæla hæfileikaríkt fólk frá því starfi. Það er óhugguleg þróun þegar hópar fólks eru farnir að krefjast jafnvel ritskoðunar á sárasaklausu námsefni af því að þar kunni að leynast fordómar og innræting, ekki síst um hlutverk kynjanna.

    Bullið er komið út yfir allt. Nú eru menn jafnvel að velta því fyrir sér hvort endurútgáfa bókar Muggs um negrastrákana kunni að móðga einhvern eða varði jafnvel við lög. Hvenær öðlaðist orðið negri (negro) neikvæða merkingu?

    Hvaða orð vilja menn nota í staðinn. Svertingi, blökkumaður eða eitthvað annað? Ég er sammála því að ni..... sé neikvætt (The N-word)og nokkur önnur en fyrr má nú rota....

    Ýmis önnur orð virðast hafa í seinni tíð öðlast neikvæða merkingu, jafnvel án allra raka. Nóg er að einhver fari að velta þeim fyrir sér og komist að þeirri niðurstöðu að þetta eða hitt sé neikvætt og niðrandi, þó jafnvel þeir sem orðin eru notuð um hafi aldrei upplifað slíkt.

    Já það er nóg að gera hjá hugsjónafólkinu, fólkinu sem veit miklu betur en við hin hvað er rétt, rangt, holl. Já hvað er "öllum" fyrir bestu.

    Einar, eilítið áttavilltur og e.t.v. fordómafullur að mati þeirra sem "vita betur".

    By Anonymous Anonymous, At Tuesday, 23 October, 2007  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home