Leyndur galli?
Flokkast nágranni sem spilar á harmónikku undir leyndan galla á íbúð? Ef það hjálpar einhverjum við að komast að niðurstöðu þá vil ég bæta því við að hann er í næstu íbúð og stappar niður fæti allt lagið til að halda takti.
kv
Kalli, nemi í klassískum píanóleik (búinn að fara í þrjá tíma og búinn að læra eina áttund í C dúr)
kv
Kalli, nemi í klassískum píanóleik (búinn að fara í þrjá tíma og búinn að læra eina áttund í C dúr)

2 Comments:
Ætli nágranninn flokki okkur sem leyndan galla líka?Erum bara með 1.stigs sellóleikara, 1.stigs píanónem, fyrrverandi fiðlusargara, óperuæfingar ('E'EGG EERR SSVVAANNGUUR!!!)
Kannski er um að ræða hefndaraðgerðir ??
kv. Á
By
Bromley, At
Saturday, 06 October, 2007
Ég held að þetta flokkist tæplega undir leyndan galla.
Til að þetta geti flokkast sem "ónæði" samkvæmt lögreglusamþykkt þarf dargspilsleikarinn að þenja hljóðfærið fyrir kl.08:00 á morgnana og eftir kl.23:30 á kvöldin.
Verið getur að lögreglusamþykkt Akureyrar sé á annan veg, eins og allt í þeim bæ.
E.t.v. er um að ræða e.k. innrætingu, meðvitaða og kostaða af bænum, eins og stundað er t.d. í Norður Kóreu þar sem ríkið sér um að innræta þegnunum réttan og hollan smekk. Harmonikkuleikaranum hefur e.t.v. verið plantað þarna á vegum bæjarins til að vega á móti píanóæfingum, fiðlusargi og aríum úr húsi "aðkomufólksins". Húsi "fólks á villigötum" að mati yfirvaldsins.
Ég hallast að því að þarna sé um spilun af e.k. opinberum innrætingardiskum, að ræða. Ég mundi hlusta eftir blæbrigðum í leik dragspilsleikarans. Blæbrigðin segja allt.
Stappið sem þið heyrið er e.k. umvöndun eða áhersla eins og ásakandi, bendandi, fingur hins opinbera og réttsýna leðbeinanda. Dump, dúmp, dúmp...
Vænisjúkur! Ég?. Nei, ó nei.
Raunsær að vanda og hættur á lyfjunum, for good.
Einar
By
Anonymous, At
Tuesday, 09 October, 2007
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home