Barngæslan ljúfa
Óðinn fór í vistun eftir skóla í dag, þar var nýr starfsmaður sem dundaði sér við að segja börnunum draugasögur. Óðinn virtist hafa gaman af þessu á meðan þetta stóð yfir en þegar heim var komið þá var hann svo hræddur að hann vildi alls ekki víkja frá okkur þar til hann fór að sofa. Hvað mynduð þið gera?

3 Comments:
Stórt er spurt!
Svarið get ég ekki fundið í skræðum um pedagogy sem ég þurfti að lesa s.l vetur.
Ég mundi bíða aðeins með það að kvarta yfir starfsmanninum nýja og fylgjast með því hvort hann heldur uppteknum hætti. E.t.v. er um vankunnáttu að ræða og um fróman vilja til að gera vel, skemmta börnunum. EN!. Hugsast getur að illt innræti stjórni þarna ferðinni og eindreginn ásetningur til að hræða barnssálirnar ráði ferðinni. Ef framhald verður á tel ég rétt að ræða málið við yfirmann viðkomandi og biðja hann að koma því til starfsmannsins að huga að innihaldi sagnanna og sníða þær að aldri þeirra sem á hlusta.
Ég man að bróðir minn hafði gaman af því að segja mér draugasögur, já og sorglegar sögur af munaðarlausum börnum, sem komu mér úr jafnvægi og jafnvel í uppnám EN! Ótrúlegt en satt þá sótti í æ stærri skammta af þessu efni, bað hann um meira og meira.
Ég hef enn ekki náð að vinna almennilega úr þessari reynslu en tel að hún hafi þó gert mig sterkari á sumum sviðum.
S.S. Bíða aðeins og sjá hverju fram vindur.
Kveðja,
Einar, í þokkalegur jafnvægi en skeptískur á hið yfirnáttúrulega.
By
Anonymous, At
Friday, 05 October, 2007
Ég hef notað þessi ráð og virkuðu bæði nokkuð vel á mínum bæ. Reyndar ekki í sambandi við drauga heldur annað.
Þú getur reynt að breyta þessu úr hræðslu yfir í skemmtilegt verkefni fyrir Óðinn.
Sem sagt látið hann semja sína eigin draugasögu eða draugaleikrit og látið hann síðan leika það í draugaklæðum. Þetta verður samt að koma út sem skemmtileg upplifun fyrir hann og best ef að þið eða vinur sé með hlutverk í leikritinu þannig að hann sé ekki bara einn.
Ef hræðslan kemur upp aftur eftir að hann hefur sett upp sína eigin sögu eða leikrit þá getur þú bent á að starfsmaðurinn hafi einnig búið til draugasögu alveg eins og hann hafi verið að gera og þetta sé bara uppspuni hjá þeim báðum.
Ef þetta ráð virkar ekki þá er annað ráð sem að ég hef notað og virkaði líka vel. Þú gefur Óðni "sérstakann" stein (getur tekið einn út á bílaplani og málað hann í flottum litum eða keypt lítinn krystal). Þessi steinn er svo kallaður "Worry Stone" verður að íslenska það sjálf mín kæra:). Óðinn talar við steininn á kvöldinn þegar hann er hræddur. Þú útskýrir fyrir honum að ef maður trúi á steininn þá hafi hann töframátt til láta mann hætta að hafa áhyggjur af því sem er að angra mann.
Meira get ég ekki hjálpað :/
Kær kveðja, lille sys
By
Fnatur, At
Friday, 05 October, 2007
Þetta er mjög góðir punktar hjá ykkur!! Kærar þakkir, Á
By
Bromley, At
Sunday, 07 October, 2007
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home