F-dúr
Jæja, ég held ótrauður áfram í píanónáminu nágrönnunum til ómældrar gleði. Nú er ég að fara í gegnum kaflann um F-dúr. Fyrsta svarta nótan, takk fyrir. Ég og kennarinn erum búnir að uppgötva saman að ég hef nú sennilega eitthvert tóneyra en er hins vegar taktlaus. Við erum hæfilega bjartsýnir á að ég geti þróað þetta með mér. Ég reyni því að telja bara í huganum þangað til.
kv Kalli
kv Kalli

10 Comments:
Hang in there!
Þeir eru ófáír virtuósarnir sem fengu í upphafi þá umsögn að hæfileikana skorti.
Vertu bjartsýnn, fjárfestu strax í kjólfötum.
Einar, vita laglaus en bjartsýnn á getu "annarra".
By
Anonymous, At
Friday, 26 October, 2007
Ég aftur.
Mér datt í hug að senda þér þetta, svona til hvatningar.
On Musical Talent
How can we explain the vast differences in musical ability? How can one species produce Paul Simon and William Hung? Are we born with musical talent, or do we develop it? Let's sort through the research:
* Primitive musicality is, without question, built into our DNA
- Two-day old infants show a preference for some music over others (N. Masataka, 1999).
- Nearly all infants babble with melody and intonation (Gardner, 1997, p. 251).
- At 1, children can often match pitch (Kessen, Levine & Peindich, 1978).
- At 1 1/2, children engage in spontaneous song (Kessen, Levine & Peindich, 1978)
- At 2 1/2, children show extended awareness of songs by others (Davidson, 1994, in R. Aiello)
While these early developments can be influenced by outside events, they clearly unfold according to a genetic blueprint.
We cannot say the same for the next phase of development:
* Beyond primitive ability, even basic musical development requires some modicum of encouragement and teaching.
- "Musical development continues beyond the age of 7 or so only in an environment that provides some sort of tutelage." (Gardner, 1997, p. 253; Gardner, 1973; Winner, 1982)
- Absolute ("perfect") pitch is not a genetic accident or random occurrence, but is developed in young childhood under specific external conditions (D. Deutsch, 2004; Takeuchi & Hulse, 1993).
Then, to take it to the next level, aspiring musicians need true instruction and a work ethic:
* Advanced musicianship requires methodical training and "deliberate practice"
- "Talent proves of no avail in the absence of thousands of hours of practice distributed over a decade or more, as the youngster gains facility in various first- and second-order musical symbol systems. (Gardner, 1997, p. 256).
- The very best professional musicians practice the most and the smartest compared to the next best group of professional musicians, who in turn practice more and better than the third-best group (Ericsson et al, 1993). Top musicians consistently require about ten years and 10,000 hours of practice to achieve the height of their virtuoso skill-level.
- Among student musicians, the best ones also practice more than the next-best, who practice more and better than the ones who eventually drop out (Sloboda, Davidson, Howe, and Moore, 1996).
- "Deliberate practice" is qualitatively different from ordinary experience. In ordinary experience, an individual is exposed to certain task demands, spends time attaining proficiency at that task and then plateaus, more or less satisfied with his/her level of competence. Under these passive circumstances, more time spent with the same task after the plateau will not significantly increase skill-level. The skill level becomes autonomous and stable. In contrast, under a regime of deliberate practice, the individual is never quite satisfied and is always pushing a little bit beyond his/her capability, actively and incrementally expanding that capability. (Ericsson, 2006, chapter 38).
- Francis Galton, the father of eugenics and theories of innate talent, suggested that individuals pursuing a skill naturally rise to an innate limit of their capability. The work of Ericsson and others suggests that this is nonsense -- that in many if not most cases these limits are not innate but connected to the quantity and quality of training, and to an individual's level of ambition/determination.
* Musical training physically alters the brain. Accomplished musicians have key differences in their brains -- not from birth but as a direct result of training.
- Right-handers not trained in music show typical right-hemisphere processing, while right-handers trained in music show left-hemisphered dominance (Bever & Chiarello, 1974)
- Cortical representations of fingers of the left hands of string players get significantly enlarged compared to non-musicians -- and moreso for those who train earlier in life. (Elbert et al, 1995)
None of this, of course, rules out the possibility of innate talent. What it does do, though, is paint a rich, descriptive picture of musicianship being largely in the realm of development. After a thorough review of the research, Lehmann & Gruber state: "Taken together, it is difficult to obtain clear evidence on the role of innate abilities, despite the fact that giftedness features prominently in everyday discourse. On the other hand, much evidence exists that practice and other environmental factors have a large impact on changes in many variables related to musical performance." (p. 458.)
Can anyone be a great musician? No -- there are all sorts of limitations. Some are severely physically disabled, others intellectually disabled. Others don't have the childhood resources of encouragement and training. Others never develop the intense desire, for whatever reason. There are lots of obstacles out there. The point that I think shines through in all this research is that we need to sweep aside this old notion that most people simply don't have IT. The IT -- the greatness -- is something you acquire, not something you are given or are not given. Some may face too many obstacles to acquire IT but few are born with limitations so severe that the acquisition is inherently impossible.
S.S. þrotlausar æfingar. Og mundu:
Musical training physically alters the brain.
Einar, alias William Hung.
By
Anonymous, At
Friday, 26 October, 2007
Ansi ertu svalur Kalli ad fara ad laera a piano a gamals aldri:) God sagan hans Hallgrims i sidasta bloggi. Bid ad heilsa Astu minni.
By
Berglind Rós Magnúsdóttir, At
Thursday, 15 November, 2007
Jæja Knútur. Engar fréttir frá píanó náminu eða Glerártorgi?
By
Fnatur, At
Tuesday, 27 November, 2007
koma svoooooooo.
By
Fnatur, At
Monday, 03 December, 2007
Ég tek undir með Fnati.
Hvað er að frétta af píanónáminu?
Er það satt sem heyrst hefur að Karl sé að æfa fyrir nemendatónleika sem fram munu fara nú á aðventunni?
Hvað er á efnisskránni?
Er kominn tími á Steinway and sons hljóðfæri í stað rafmagnsgræjunnar?
Akureyri hefur alið af sér nokkra ,,hógværa" einstaklinga sem lagt hafa fyrir sig tónlist. Skal þar fyrstan telja vélvirkjann og hetjutenórinn Kristján Jóhannsson.
Ég bara spyr, sí svona,er von á öðru undrabarni að norðan?
Eitt er víst að þessi þögn, þessi leynd, þessi dulúð veit á einhverjar ,,stórar" fréttir að norðan. Ó já.
Einar, spenntur.
By
Anonymous, At
Monday, 03 December, 2007
Já tek undir með Einari. Þessi undarlega þögn er að verða ansi löng.
Til að gefa ykkur fleiri "blogg"hugmyndir.
1. Myndablogg með fögrum vetrarmyndum frá Akureyri.
2. Fréttir af tónleikum Ala Cortes.
3. Fleiri píanófréttir.
4. Slagsmál á Glerártorgi...hvaða Akureyringur náði í síðustu Nintendi Wii fyrir jólin.
5. Veitingahúsa gagnrýni frá afmælisdegi Dr. Kalla.
Áfram Bromley hjón :)
By
Fnatur, At
Saturday, 08 December, 2007
Doktorinn orðin hálf-fertugur.
Til hamingju með það, þó þær óskir séu aðeins of seint á ferðinni.
Þau tímamót hafa farið illa í suma sem hafa upplifað e.k. krísu og tekið upp á því að líta yfir farinn veg, sett sig í spor öldungsins og farið að sjá eftir því að hafa ekki gert eitt og annað. Slíkt er öldungis ótímabært enda menn á þessum aldri nánast nýskriðnir, orðnir erctus, af hvítvoðungsskeiðinu.
Menn á þessum aldri geta flestir enn klæðst gleraugnalaust og gengið í flest verk næstu árin.
Hlakka til að sjá ykkur.
Einar.
By
Anonymous, At
Tuesday, 11 December, 2007
Undarlegt hve fólk verður meirt um jólin. Jafnvel buisnessmenn sem auðgast hafa á því að selja okkur dýrustu matvöru
í heimi uppgötva jesúbarnið í brjósti sér á aðventunni og "gefa" bágstöddum bílfarma af kjöti í beinni útsendingu. Þetta hefur ekkert með ímyndarsmíð að gera, eingöngu góðmennsku. Ó já.
Það hefur s.s.orðið endurnýjun í jólasveinahópnum sem fyrir skömmu samanstóð af farlama, persónuleika brengluðum og illa uppöldum hrekkjusvínum sem ýmist stálu eða gáfu.
En svona eftir á að hyggja þá hefur það eitt breyst að nú klæðast þeir Armani og Boss og taka meira en gefa minna.
Ég kann betur við þá gömlu sem börðu sér ekki á brjóst á götum úti og gáfu ekki "í beinni".
Ef barnavernd og Breiðavík hefði verið komin til er drengirnir hennar Grýlu voru ekki orðnir lögráða hefðum við misst af miklu.
Lifi þeir gömlu! Megi nútíma hátæknisjúkrahús bæklunaraðgerðir, stoðtæki og rómuð íslensk læknisþjónsta gera þeim það mögulegt að starfa áfram.
É þoli ekki þessa nýju.
Einar, svolítill skröggur en jólabarn inn við beinið.
By
Anonymous, At
Thursday, 20 December, 2007
Hæ!
Nú árið er ,senn, liðið í aldanna skaut og aldrei það kemur........bla, bla.
Mér er efst í huga kollsteypan á hlutabréfamarkaðnum í árslok. Já marðaðnum sem hinir eldkláru verðbréfastrákar, já "strákarnir okkar", höfðu talað upp úr öllu valdi. Það var athyglivert myndskeiðið frá því í októberbyrjun sem sýnt var í Kastljósi í s.l. viku af einum bankastrákanna segja frá því að vænlegt væri að kaupa hlutabréf "einmitt núna". (Ætli hann hafi þurft að losa sig við eitthvað sjálfur í tíma ?).
Undarlegt land Ísland. Hér eru smákrimmar hengdir fyrir að stela blóðmörskepp, svona til að seðja sárasta hungrið, á meðan það sem mundi flokkast undir spillingu og krimmaskap í öðrum vestrænum löndum er látið afskiptalaust.
Það verður e.t.v. nóg að gera hjá saksóknurum hinna ýmsu lögregluembætta á nýju ári þegar þeir sem fjárfestu í hlutabréfum, með lánsfé, að ráði "framsýnna" bankastráka þurfa að fara að stela sér í matinn.
En örvæntum ekki!
Jafnvel forsetinn okkar, þið munið sósíalistinn, sem nú er orðinn einn helsti talsmaður auðvaldsins og útrásarinnar og meðlimur í jet-set klúbbnum,trúir því að þetta sé allt á réttri leið.
Ég er reyndar orðinn nett svartsýnn. Sko. Ef þetta fera allt til ands...Bónur og það allt, þá verður örugglega hungursneyð í landinu. Já og þá hefur jóhannes ekki efni á að gefa læri í "beinni" og þá........djö....
Fólk hættir, vegna fjárskorts, að geta farið í lýtaaðgerðir og......
Áttið þið ykkur á þesari þróun?
Við verðum e.t.v. ekki lengur, klárust, ríkust, hamingjusömust né fallegust því að; ALLT ÞETTA KOSTAR PENINGA!
Þetta verða ekki ánægjuleg áramót, og fer ég fullur svartsýni inn í nýtt ár, já sannkallaðan táradal.
Ég fer að hugsa mér til hreyfings.
Vitið þig hver var næst hamingjusamasta þjóð í heimi, og já hvort bræðrafélagið Iceland express og Ícelandair flygur þangað?
Þakka árið sem er að líða.
Einar, örlítið svartsýnn en ekki skriðinn undir sæng....enn.
By
Anonymous, At
Monday, 31 December, 2007
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home