Nýr tannlæknir
Fór út í gær, ég var boðin velkomin á nýjan vinnustað með notalegum kvöldmat í góðum félagsskap. Dansaði í smá stund í lokin á Kaffi Akureyri, þeir eru hættir með Grease syrpuna seigu.
Tók fram sokkubuxur í morgun, Hlíðarfjallið hvítt og Vaðlaheiðin líka. Brrr, hvernig á eiginlega að klæða sig þegar maður fer út að hlaupa í svona skítakulda? Er málið bara húfa trefill, ullarnaríur frá Janus og góður ipod? F'orum með drengina á bókasafnið í dag, alltaf notalegt að fara þangað. Svo eru einnig góð kaffhús hérna eins og Bláa kannan, kökurnar þar eru alveg yndislegar.
Er að skipuleggja næstu "sshhuðuuur ferð", ætla að fara eftir mánuð og stoppa í nokkra daga. Það er ekki margt sem ég sakna úr Reykjavík, utan vinanna.Nings var ofarlega á listanum en svo tóku þeir sig til og opnuðu nýjan Nings stað hér í höfuðstað Norðlendinga. Kakóið úr danska bakaríinu á Suðurlandsbraut og innisundlaugin í Árbænum er þó eitthvað sem ég gæti vel hugsað mér að hafa hér. Já verið svo velkomin til mín á stofuna, bloggverjar fá sérstaka þjónustu.


1 Comments:
glæsileg kona og til lukku með eiginmanninn! Gott að vita af ykkur á Akureyri, "blikk, blikk"
By
brynjalilla, At
Tuesday, 09 October, 2007
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home