Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Saturday, June 23, 2007

Er kominn júní?

Hvað gerðist eiginlega? Ég sem er bara nýbúin að birta pistil hérna. Hálft heimilið er í kössum og hinn á rúi og stúi. Elska að flytja. Á eftir að mæta 10 sinnum í vinnuna áður en ég hætti. Ég held að það sé kominn tími til að gera lista yfir það sem ég hef lært hérna í Englandi, jú mín er nú búin að vera hérna í 3 ára í stórmenningunni.

Það sem ég hef lært í Englandi:
1. Að drekka te og þrefaldan expresso öllum stundum
2. Að finnast fullkomlega eðlilegt að segja "I do apologize" oftar en 5 sinnum á dag
3. Að vera tillitsöm í umferðinni
4. Að keyra vinstra megin á götunni og finnast það alveg jafn létt og að keyra hægra megin
5. Að skrifa mjög kurteis en afar dónaleg kvörtunarbréf, líka að svara þeim
Pása- þarf að hita mér te
6. Að læra það að það eru til fleiri en tvær tegundir af eplum
7. Að hætta að spyrja hvaða bíl fólk á, hér þykir fullkomlega eðlilegt að eiga engan bíl
8 Að endurvinna ruslið, get ekki núna með mögulegum hætti sett gler í ruslið
9 Að kunna að meta skólabúninga á börn

Það sem ég verð þakklát að losna við
1. Raðir til að kaupa lestarmiða
2. Lítil börn að borða snakk öllum stundum
3. Illa upphituð hús
4 Creepy sundlaugar þar sem loðið svitafýlufólk stingur sér ÞURRT ofan í laugina án þess að fara í sturtu á undan
5 Seinagangur. Það tekur amk 5 daga að skipta ávísun í banka, það tekur ca 4 daga að borga reikning, þá skrifar maður ávísun, sendir hana í pósti og fær kvittun 10 dögum síðar
6 Að eyða 2 klst á dag í ferðalög
7 Traffík á M25
8 teppi á baðinu
9 síðast en ekki síst: Breskar tennur, það að mörgum sé alveg sama að hafa ljótar tennur "my mum had dentures (falskar) and I am totally happy to have dentures too" -stúlka 22 ára

Kveðja í bili,
Ásta

12 Comments:

  • Teppi á baðinu ugghhhh. Var búin að gleyma því. Já það verður yndislegt fyrir ykkur að flytja til AK og þurfa ekki að eyða 2 klst á dag í að koma ykkur til og frá vinnu.
    Afar nægjulegt að sjá aftur hreyfingu á blogginu ykkar...thanks beib.
    Hlakka mikið til að sjá ykkur öll í sumar.

    Knús, lille

    By Blogger Fnatur, At Sunday, 24 June, 2007  

  • skemmtileg samantekt, merkilegt þetta með tennurnar, þvílíkur skortur á lífsgæðum að vera komin með gervitennur 22 ára úff. Sjáumst hressar á Ak.

    By Blogger brynjalilla, At Sunday, 24 June, 2007  

  • Hæ skvísur,
    Takk fyrir innlitið, það gladdi mig að þið væruð ekki alveg búnar að gefast upp á mér. Hlakka til að sjá ykkur. LUVVV STA

    By Anonymous Anonymous, At Sunday, 24 June, 2007  

  • Hæ Ásta krúsí!

    Farðu að koma heim, mig langar að hitta þig. Gott að heyra að það eru kassar út um allt hjá þér og að þetta er allt að gerast.
    En ég ætla að setja vegartálma og loftfarsbann á leiðina norður.

    Heidili

    By Anonymous Anonymous, At Sunday, 24 June, 2007  

  • Guðdómleg samantekt - veit miklu meira um England en áður - en ég tók einmitt eftir því þegar ég dvaldi í London að tannheilsa landans er afar misjöfn og má auðveldlega lesa stéttarstöðu fólks út frá brosinu.

    By Blogger Berglind Rós Magnúsdóttir, At Monday, 25 June, 2007  

  • Hæ Heiðrún, en gaman að rekast á þig hér :) Ég fylgist alltaf með Ragnari Orra Orrasyni myndarpilti og sómamanni. Hlakka mikið til að sjá myndirnar ykkar Orra á sýningunni í sumar. Takk fyrir boðið!!
    Ásta Von Agureyris

    By Blogger Bromley, At Monday, 25 June, 2007  

  • Sæl og blessuð Linda,
    Takk fyrir að ramba hingað á Bromleytíðindi!! Ég get sagt þér margar sögur héðan, þurfum endilega að bera saman bækur okkar. Það var skemmtilegt það sem þú sagðir um að það mætti lesa stéttarstöðu út frá brosinu, augljóslega er þetta stundum rétt en hins vegar var það sjokkerandi fyrir mig að uppgötva það að margir sem eru í góðum efnum eru samt með hræðilegar tennur. Þeir hafa einfaldlega ekki áhuga á hvítu fallegu brosi (ég hef fengið kommentið "I do not want any FU***** American teeth ) þegar ég býðst til að skipta út heiðgulum framtannafyllingum fyrir hvítar í betri lit. Svo er hinn endinn líka undarlegur því að tekjulágir eiga rétt á ókeypis tannlækningum hér. Samt ganga margir um með nokkrar lafandi lufsur og gera ekkert í málinu. Klinkan mín segir að þetta fólk (people with very unfortunate background) eins og hún kallar það, hafi bara ekki alist upp við að hugsað væri um tennur og því hafi það ekki áhuga þó að það þurfi ekki einu sinni að greiða fyrir meðferðina.

    ÞETTA HLÝTUR AÐ VERA LENGSTA KOMMENT EVER!!

    Viltu knúsa Auði snilling frá mér, hún á alltaf fallegan stað í mínu hjarta..... Ásta tannsi í dag

    By Blogger Bromley, At Monday, 25 June, 2007  

  • Til Lindu: Vantar ykkur bíl í haust? Er einmitt að selja VW Touran, 7 sæta dísel á góðu verði, tveggja ára með stýrið öfugu megin. Frábær í snattið og í tjaldútilegur, æðislegur á ferðalagi um Evrópu!!!

    By Blogger Bromley, At Monday, 25 June, 2007  

  • Hefði sko ekki verið spurning að kaupa bílinn af ykkur ef við værum bara ekki hætt við að flytjast öll til Bretlands. Ég verð eins og jójó á milli Cambridge og Reykjavíkur næsta vetur. Ég var sú eina sem vildi virkilega flytja þangað og því var þetta lendingin, þ.e. að hafa aðsetur í Reykjavík. Varðandi tannheilsu þá meinti ég einmitt það sama og þú nefnir. Stéttarstaða markast ekki endilega af fjármagni heldur ekki síður af menningarauðmagni og því hvaða gildum maður elst upp við. Ef maður notar þessa víðari skilgreiningu á stétt held ég að við séum að tala um sama hópinn, er það ekki? Komum heim 24. júlí og brunum norður. Vonast til að sjá framan í þig og jafnvel fá tíma hjá þér. Verðurðu búin að opna stofu í ágúst gella?

    By Blogger Berglind Rós Magnúsdóttir, At Tuesday, 26 June, 2007  

  • Doktorinn byrjar að vinna mánudaginn 16.júlí á Akureyri.

    By Blogger Bromley, At Wednesday, 27 June, 2007  

  • JIBBÝ Besti tannlæknir ever. Hvar panta ég tíma??

    By Blogger Berglind Rós Magnúsdóttir, At Wednesday, 27 June, 2007  

  • Stofusími er 4627182 (frá 16.júlí)
    Heimilisfang Þórunnarstræti 114
    Kv. Ásta

    By Anonymous Anonymous, At Friday, 29 June, 2007  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home