Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Saturday, March 31, 2007

Hálft lamb

Í litlu fjölskyldunni okkar tökum við stundum lamb. Stundum er þetta heilt lamb, stundum hálft, stundum lambalæri og örsjaldan lærissneið. Það að taka lambið þýðir það að viðkomandi hefur lent í einhverju fúlu þar sem hann upplifir sig sem mismikið fórnarlamb í og vill fá samúð.

Eftir atburði síðustu daga þá er ég að hugsa um að taka hálft lamb og bið lesendur Bromleytíðinda um smá samúð. Já, feik samúð er bara fín líka.

Fjölskyldan var nýsofnuð aðfaranótt fimmtudags þegar þjófavarnakerfi heimilissins fór í gang. Þetta er svona sírena sem er bæði úti og inni og heyrist alveg ROSALEGA hátt í. Nóg til að nágrannar í 5 næstu götum ættu að vakna. Við höfum ekkert notað þetta kerfi og vorum löngu búin að gleyma kódanum sem á að stimpla inn. Erum bara eins og sumir Akureyringar sem ég þekki sem skilja útidyrahurðina eftir ólæsta þó að enginn sé heima. Það tók klukkutíma að fá mann sem kom til okkar um miðja nótt og aftengdi græjuna á 1 mín með skrúfjárni. Rukkaði offjár fyrir útkallið helviskur. Ég trúi því í alvörunni að einhver hjá fyrirtækinu hafi sett kerfið af stað til þessi náungi gæti grætt pening. Það sem fannst samt ömurlegast var að enginn nágranni tékkaði á okkur og engin lögga kom þrátt fyrir brjálæðislegan hávaða, nóg til að vekja alla nema auðvitað Óðinn minn sem sefur svo fast að hægt er að flytja hann á milli heimsálfa án þess að hann vakni.

Í gær fylgi fjölskyldan Óðni og Yrsu au pair út á flugvöll. M25 sem er "hraðbrautin" út á flugvöll (oft kölluð stærsta bílstæði í heimi) var með þunga traffík og ákváðum við að taka lestina. Þetta eru þrjár lestir, ein í gegnum hluta undergroundsins. Manni líður svona eins og síld í tunnu á háannatímum í lestarkerfinu og er það ekki hentugt fyrir fólk með innilokunarkennd. Þarna vorum við fjölskyldan ég með Kalla í fanginu, Kalli sr. að passa töskur og ég líka að reyna að vera nálægt Óðni sem fannst óþægilegt að standa þarna í síldartunnunni.
Svo var ég bara rænd. Já taskan mín var opnuð og veskið mitt tekið, afar hljóðlega með öllum kortunum mínum, ökuskírteininu og sætu myndinni af strákunum. Ég var SVO vond. Mér finnst andstyggilegt að ræna mömmu sem er að passa börnin sín í lestinni þannig að hún standi upp eftir lestarferðina og geti ekki einu sinni keypt vatn handa þeim. Í hvers konar heimi búum við??? Eftir 5 mín var búið að loka kortunum mínum (takk elsku Tinna mín fyrir að redda mér) -enginn skaði skeður nema hvað ég fékk svart ský inn í sálina mína. Óðinn minn tók þetta afar nærri sér og ég eyddi restinni af ferðinni út á flugvöll að útskýra fyrir honum að þjófarnir hefðu verið heimskir og hefðu ekki tekið neina peninga, bara kort sem bara ég viss secret code á. Hann hélt í alvörunni strax eftir ránið að nú þyrfti ég að fara vinna á sunnudögum og við ættum enga peninga lengur. Elsku drengurinn.

Tók langt hlaup í morgun til að hrista þetta af mér og tók til í forstofunni í 3 klukkutíma.

Bestu kveðjur,
Ásta

3 Comments:

  • Ásta mín.
    Það er fjarri mér að ég ætli að koma inn einhverri vænisýki hjá þér EN! hefur þú ekki tengt þessa tvo atburði; þjófavarnarkerfið og síðan þjófnaðinn við ókunna lortinn í frárennsliskerfinu sem maðurinn þann fann, já og handlék, fyrir skömmu.Ég held að um sé að ræða aðferðir National Front eða álíka samtaka sem vilja að þið farið að ,,koma ykkur heim". E.t.v. er þetta óánægður viðskiptavinur Kalla sr.

    P.s.
    Eins og ég sagði áðan; þá er engin ástæða til vænisýki út af þessu, bara vera á verði, skiptast á að vaka og vera á verði.

    Páskakveðjur.
    Einar, tengdapabbi.

    By Anonymous Anonymous, At Sunday, 01 April, 2007  

  • Ferlega var þetta ömurlega fúlt. Að stela af mömmu með tvö börn....það er næstum því eins og að ræna gamla konu með hækjur. Jafn lágkúrulegt. Maður heyrir alltaf af svona reglulega en heldur alltaf að þetta komi ekki fyrir sig.
    Gott að þú komst út að hlaupa til að hrista af þér versta grömpið.

    Knús, lille sis

    By Blogger Fnatur, At Tuesday, 03 April, 2007  

  • Hæ fallega fjölskylda! Takk fyrir kveðjuna á blogginu Ásta mín og gaman að heyra frá ykkur. Erum stödd fyrir norðan hjá m & p og strákarnir spyrja mikið um Óðinn :-). Verður nú gaman að geta kíkt í heimsókn til ykkar þegar þið verðið mætt á Brekkuna.
    Kær páskakveðja,
    Ragnheiður, Hjálmar og ze boyzzzz

    By Anonymous Anonymous, At Saturday, 07 April, 2007  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home