Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Sunday, July 01, 2007

Frábær helgi-6 dagar í gám




Þegar ég var lítil fékk ég sjö ár í röð sama málsháttinn í páskaegginu mínu "ekki hafa of mörg járn í eldinum". Ég held að þetta eigi alveg ágætlega við mig um þessar mundir þó að það sé á markmiðalistanum mínum að einfalda hlutina, gera minna á hverjum degi og slaka meira á.


Þó að helgin hafi verið mjög annasöm var hún samt bara alveg frábær. Á föstudagskvöldið hitti ég 9 eðalkonur sem ég hef kynnst hérna og drukku við allt of marga Cosmopolitan drykki og dönsuðum alveg eins og í Þjóðleikhúskjallaranum í gamla daga. Frábært party-best ever!!


Var löt á laugardaginn. Horfði þó á Kalli minn setja plastfilmu utan um húsgögnin.Í morgun vaknaði ég eldsnemma og var komin í lest upp í London með 20 þúsund öðrum hlaupurum rétt upp úr sjö. Fyrsta hlaupið mitt sem er svona opinbert keppnishlaup. Náði bara fínum tíma 58mín-11sek og var rosa stolt. Fékk mér hálfan Subway bræðing í verðlaun.




8 Comments:

  • Flott hjá þér Ásta og góður tími hjá djammboltanum þér!

    By Anonymous Anonymous, At Sunday, 01 July, 2007  

  • djö kalla ég þig góða að hlaupa 10 km stuttu eftir gamaldags þjóðleikshússdjamm, glæsilegt hjá þér stelpa. Heiðrún gamla vinkona mín mér finnst gaman að vera á eftir þér í kommentalistanum.

    By Blogger brynjalilla, At Monday, 02 July, 2007  

  • Já nákvæmlega. Djamm og síðan 10K hlaup á þessum líka fína tíma. Þetta gæti ég heldur betur ekki.
    Já bara 6 dagar í gám hjá ykkur. Hrikalega líður tíminn hratt (já já bara fyrir Högna.....á gerfihnattaöld).

    Love, lille sis

    By Blogger Fnatur, At Monday, 02 July, 2007  

  • La la la tra la la
    Á pantað flug til Rvk á þriðjudaginn frá Stanstedflugvelli, honum var reyndar lokað í dag vegna sprengihættu...dásamlegt hérna í heimsmenningunni....
    Barbamamma

    By Anonymous Anonymous, At Monday, 02 July, 2007  

  • Þú ert algjör hetja Ásta, góður tími, held við hefðum getað orðið fínir hlaupafélagar EF þú hefðir flutt suður. Báðar svona ekki með hlaupalúkkið (þú veist spírulúkkið)en býsna góðar samt (he he).

    By Blogger Berglind Rós Magnúsdóttir, At Tuesday, 03 July, 2007  

  • Hæ Barbamamma. Gott að þú sért komin með miða heim.
    Hlakka til að sjá þig.
    kv, lille

    By Blogger Fnatur, At Tuesday, 03 July, 2007  

  • Hey Barbamamma.
    10 dagar hjá mér...hvað eru margir hjá þér?

    By Blogger Fnatur, At Thursday, 05 July, 2007  

  • hæ Ásta,
    Til hamingju með þetta... bæði tímann, medalínuna, flutninginn og flugmiðann.....

    Góða skemmtun að pakka.... er að missa geðheilsuna á að pakka öllu upp aftur... erum alvarlega að íhuga að henda slatta af draslinu...

    kv.
    Anna Björg

    By Anonymous Anonymous, At Thursday, 05 July, 2007  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home