13 dagar í gám
Vaknaði í panikkasti um miðja síðustu nótt, var að fatta að ég er í alvörunni að fara að flytja bara eftir 2 vikur. Ég fór yfir "TO DO LIST" í huganum en hann var svo langur að ég ákvað bara að horfa á Sjónvarpsmarkaðinn í hálftíma til að slaka aðeins á. Tókst bara ljómandi vel!! Mætti brosandi í vinnuna með sprautuna á lofti eins og vanalega.
Ég hef verið að undirbúa mig undir næsta sunnudag en þá ætla ég að hlaupa London 10k sem er svona götuhlaup til styrktar góðgerðarmálefnum. Ég hleyp til styrktar Alzheimer samtökum. þygg öll framlög með þökkum, stór sem smá, reikn. 311-26-658, kt 2103724669. Allt fer til til styrktar Alzheimersjúklingum. Ég hef verið að æfa mig fyrir hlaupið svona til að detta ekki niður dauð við endamarkið. Passa að borða vel til að missa ekki þyngd og svo hefur Kalli verið duglegur að senda mig út að hlaupa í klukkutíma þegar er mígandi rigning og einhver góður þáttur í sjónvarpinu sem hann vill ekki láta trufla sig yfir. Mér finnst reyndar best að hlaupa í rigningu. Vona baraa ð það rigni sem mest á sunnudaginn. Ósköpunum verður sjónvarpað hér á BBC1-Óðinn minn rosa spenntur (hann ætlar að heita á mig 2 pundum ef ég klára hlaupið en hann segist ætla að gefa mér 3 pund ef ég vinn, blessaður drengurinn)
Er reyndar að skipuleggja stelpupartý hér á föstudagskvöldið-eitt til tíu hvítvínsglös ættu nú ekki að skemma fyrir er það nokkuð?
Ásta skásta

9 Comments:
Fyndið hvað við lifum keimlíku lífi Ásta - flutningar, áhyggjur og stúss - nema ég get ekki hlaupið hérna í 35 stiga hita - allt of heitt. Gæti gefið mikið fyrir það að hlaupa með þér í rigningunni í London.
By
Berglind Rós Magnúsdóttir, At
Tuesday, 26 June, 2007
Ah þú ert svo dugleg. Mér finnst fúlt að hlaupa í rigninu er of mikill gleraugnaglámur og enn hef ég ekki fundið rúðuþurrkur á græjuna. Gangi þér annars vel að pakka!
By
brynjalilla, At
Tuesday, 26 June, 2007
Ég ætla að toppa Óðinn og gef þér 4 pund ef þú vinnur. Ég er einmitt dyggur áhorfandi BBC1 og bíð spennt eftir sunnudeginum.
En svo eru hetjur í fjölskyldunni á Akureyri er það ekki? Það er ekki amalegt að lifa þar sem slíkt gæðafólk fer um. Til hamingju!
By
Anonymous, At
Wednesday, 27 June, 2007
Takk fyrir kveðjurnar stelpur, mér finnst líklegt að þú þurfir nú ekki að greiða 4 pundin þar sem einhver afrísk kona sem á víst eitthvað fínt met í 10 K ætlar að koma og keppa við mig. Ég verð bara glöð ef ég næ að hlaupa þetta á 65 mín. Hef aldrei gert svona áður.
Ég er afar stolt af systur minni og mági norðan heiða sem bjorguðu litla drengum frá drukknun. Ég hefði aldrei geta gert svona. Takk fyrir kveðjuna Heiðrún ég kem henni til skila.!!
By
Bromley, At
Wednesday, 27 June, 2007
Mikið er þetta spennó. Vildi að ég væri að hlaupa með þér. Ég legg inn til styktar þér í kvöld beibe. Er voða stolt af þér og björgunar genginu norðan heiða.
Mikið er ég heppin að eiga svona ofursystur ;)
p.s. mæli með food channel til að slaka líka á. Horfi alltaf á kökuþættina þegar ég er í heilsuátaki.
By
Fnatur, At
Thursday, 28 June, 2007
Hæ allir
Gaman að sjá að það er komið líf á síðuna. Ég veit að það er mikið að gera í flutningum og örðumhlutum. Ég hlakka til að fá ykkur á Akureyri. Við Eva erum byrjaðar að plana hjónahittingar á nýjan leik. Það verður kanski aðeins leyngra á milli þeirra en í denn, en það er samt ekki eins langt til þín og er núna.
Kv. María Sif, það er bara rétt um 3 og´hálfur tími á milli okkar. Þetta er bara eins og að fara í vinnuna í Englandi með biðröðinni eftir miða. heheheh
By
Anonymous, At
Friday, 29 June, 2007
Hlakka til að hitta ykkur María og Eva, ekkert mál að rúlla til þín í sunnudagsbíltúr eða að hitta ykkur í Rvk, kær kveðja, Ásta
By
Anonymous, At
Saturday, 30 June, 2007
Takk Fannsa fyrir framlagið!!
By
Anonymous, At
Saturday, 30 June, 2007
Til hamingju með hlaupið og tímann í dag. Glæsilegt.
By
Fnatur, At
Sunday, 01 July, 2007
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home