Kvöldsögur
Það er ritúal á hverju kvöldi að lesa bók fyrir Kalla litla. Síðan er slökkt í herberginu og sögð saga og þá slæst Óðinn stundum í hópinn. Fyrst var vinsælast að biðja um sögu um íkorna, ketti hunda eða eitthvað álíka saklaust. Þá byrjar sagan eitthvað á þessa leið:
Einu sinni var Kisi. Hann átti heima í stóru húsi. Einu sinni var hann einn heima... og svo heldur þetta áfram bara einhvern veginn, fer svolítið eftir því hvernig stemningin er. Upp á síðkastið hafa sögur af hasarhetjum verið vinsælli t.d. Spiderman, Batman eða Superman. Ég hef komist að því að það skiptir nákvæmlega engu máli um hvað sagan er svo lengi sem hasarhetjan er nefnd á nafn öðru hverju. Aðalatriðið er að segja söguna frekar hægt og með seiðandi röddu, svona svipað og þegar fólk er dáleitt. Kalli sofnar þá yfirleitt á innan við fimm mínútum en Óðinn heldur það út lengur.
Sem dæmi um sögur sem ég hef sagt er sagan af Fitubollu-Spiderman, sem ennþá bjó heima hjá mömmu sinni. Hann gerði ekkert annað en að horfa á sjónvarpið og borða karföfluflögur. Þá hringdi síminn. Þetta var ung kona sem sagði að vondi kallinn hefði bundið hana við staur uppi á hæsta húsinu í bænum og eina von hennar var að Spiderman kæmi og bjargaði henni (hvernig gat hún hringt ef hún var bundin við staur, spyr Óðinn; ég segi bara að það komi í ljós á meðan ég er að leysa það vandamál í huganum). Spiderman tókst að standa upp úr sófanum með naumindum og rétt tekst að troða sér í Spiderman-búninginn því hann var búinn að fitna svo mikið síðan hann var notaður síðast. Hann var að biðja mömmu sína um að renna upp rennilásnum á bakinu á meðan hann hélt maganum inni. Síðan hljóp hann niður tröppurnar (hann býr í blokk) en varð að hvíla sig þegar hann kom niður. Síðan rétti hann út hægri hendina og skaut köngulóarvef á húsið á móti og ætlaði að sveifla sér á milli húsa þar til hann kæmi að hæsta húsinu í bænum. Hann byrjaði að sveifla sér en vefurinn hélt honum ekki uppi og slitnaði svo að hann varð að taka leigubíl. Þegar hann fann loksins konuna kom í ljós að hún var ekki bundin við staur (þess vegna gat hún hringt) heldur var hún bara að plata hann til að koma því að hún var vinkona vonda kallsins sem ætlaði að berja Spiderman í klessu. Spiderman
tókst samt á einhvern ótrúlegan hátt að sleppa.
Í kvöld sagði ég Kalla síðan sögu um Superman. Ung kona hringdi í Superman og bað um hjálp því hún hafði fengið bréf frá Skattinum um að hún fengi ekki endurgreiðslu. Superman sagði að jafnvel hann gæti ekki hjálpað henni. Hann hefði sjálfur reynt að fá endurgreiðslu vegna útgjalda vegna fatakaupa, en hann þyrfti yfirleitt um tuttugu búninga á ári þegar hann væri að bjarga heiminum. Vandamálið var hins vegar að hann keypti ekki búningana úti í búð heldur væru þeir saumaðir á leynilegan hátt og því hefði hann enga kvittun til að sýna Skattinum. Kalli hlustaði af athygli til að byrja með en sofnaði síðan vært eftir nokkrar mínútur.
tókst samt á einhvern ótrúlegan hátt að sleppa.Í kvöld sagði ég Kalla síðan sögu um Superman. Ung kona hringdi í Superman og bað um hjálp því hún hafði fengið bréf frá Skattinum um að hún fengi ekki endurgreiðslu. Superman sagði að jafnvel hann gæti ekki hjálpað henni. Hann hefði sjálfur reynt að fá endurgreiðslu vegna útgjalda vegna fatakaupa, en hann þyrfti yfirleitt um tuttugu búninga á ári þegar hann væri að bjarga heiminum. Vandamálið var hins vegar að hann keypti ekki búningana úti í búð heldur væru þeir saumaðir á leynilegan hátt og því hefði hann enga kvittun til að sýna Skattinum. Kalli hlustaði af athygli til að byrja með en sofnaði síðan vært eftir nokkrar mínútur.
kv Kalli

2 Comments:
Ferlega líst mér vel á þessa sögustund. Þær verða eflaust nokkrar í Florida. Spurning um að gefa út Fitubollu Spiderman í samstarfi við Latabæ. Já er bara nokkuð viss um að það gæti virkað hehe.
By
Fnatur, At
Sunday, 10 December, 2006
Blessaðir feðgar.
Mér líst vel á þessar sögustundir, já og boðskapinn. Feitir eiga líka sjéns, geta verið hetjur! Orð í tíma töluð. Þetta er nauðsynlegt í bland við heilsurækrarfasismann í Latabæ. Þær eru nefnilega víða feitu hetjurnar sem berjast við illu öflin og "lélega sjálfsmynd" sem íþróttaálfar og hitt fallega fólkið hefur átt sinn þátt í að móta, mér til skapraunar. Mér líst vel á uppeldið í Bromley. Hvernig væri að taka skrefið til fulls og skapa hetju sem er á bótum, er öryrki af völdum kyrrsetusjúkdóma. Gulli-gangráður, Kiddi-kransæð eða Siggi-sykursjúki. Það væri hægt að hafa viðkomandi í korseletti, stífreimuðu í bakið, og á bleikum skokkabuxum með súrefniskút á bakinu. Í alvöru, það eru ekki allir í sama mót steyptir, sko. Það eiga allir skilið að geta séð sjálfan sig í hetjunni. Líka þeir feitu.
Einar, pabbi.
By
Anonymous, At
Monday, 11 December, 2006
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home