Dr Who
Billy Piper, sjóðandi heit bresk ofurskutla!
Fyrsta Dr Who þáttaröðin var gerð árið 1963 og hefur verið í framleiðslu með hléum allt fram á þennan dag. Þættirnir fóru aftur í framleiðslu í fyrra eftir um tíu ára hlé. Christopher Eccleston varð níundi leikarinn frá upphafi til að leika doctorinn og hin kynþokkafulla Billy Piper (hér fyrir ofan) var fengin til að leika samferðarkonu hans. Þættirnir náðu fljótt gríðarlegum vinsældum hjá öllum aldurshópum í Bretlandi. Krakkarnir elska skrímslin, vélmennin og allan hasarinn, pabbarnir setjast niður með börnunum og hafa bæði gaman að þáttunum og dást að Billy Piper í laumi, sem á breskan mælikvarða er ofurskutla, en myndi ekki fá hlutverk sem skúringarkona í Hollywoodstúdíói. Svo hafa margar konur líka gaman að þessu, hver svo sem ástæðan er.
Cybermen og Dalek (fljúgandi)
Fyrsti doctorinn!
David Tennant,

1 Comments:
Þetta skýrir mjög margt og takk fyrir útskýringuna. Ég var farin að halda að þið hefðuð öll tapað vitinu þarna í Englandinu.
Við Hildur ætlum að prufa nýrri mynd. Pantaði fyrsta seasonið (sem kom út 2005) fyrsta diskinn á því. Prufum hvort það gangi betur.
Já ég sé það núna á netflix síðunni að það sem við vorum með kom út 1972 meine gute það skýrir hárið haha.
By
Fnatur, At
Saturday, 09 December, 2006
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home