Tilkynning
Að gefnu tilefni er mér ljúft að tilkynna að við vorum ekki meðal þeirra sem lentum í skýstrokknum í London í vikunni.
Ég vil einnig nota þetta tækifæri til að þakka þeim sem sendu mér afmæliskveðjur á 29 ára afmælinu þann 5. desember. Sérstaklega þótti mér vænt um eftirfarandi textaskilaboð:
Til lukku með afmælið eldgamli kall.
Mínútu síðar kom síðan frá sama aðila:
Og graddi
Ég fékk Dr Who sokka frá fjölskyldunni í afmælisgjöf, nánar tiltekið með mynd af Tardis, símaklefanum sem virkar sem tímavél. Ég fékk líka Dr Who lyklakippu. Óðinn og Kalli litli voru mjög öfundsjúkir.
kv Kalli

3 Comments:
Skemmtilegt hvað aldurinn breytist milli "blogga"....hahahhahah
kv.
Anna Björg
By
Anonymous, At
Saturday, 09 December, 2006
Fyrst þú minntist á Dr. Who hér á blogginu þá verð ég bara að spyrja nokkurra spurninga.
Ég leigði nefnilega einn þátt á netleigunni okkar og ég og Hildur gerðum heiðarlega tilraun til að horfa.
Svo ég hljómi nú eins og Jón Baldvin:
Í fyrsta lagi þá gat ég ekki séð neitt sem krakkar gætu haft gaman af í þessum þætti.
Í öðru lagi þá voru hljóðgæðin svo léleg að þetta var eins og að horfa á gamlan þátt af Húsinu á sléttunni.
Í þriðja lagi þá bara entist ég ekki í 5 mín yfir þessu, hvað þá Hildur sem sagði "af hverju er Óðinn að horfa á svona þátt sem er fyrir fullorðna?"
Hvað er málið? Leigði ég réttan þátt? Ég var með Dr. Who and the three doctors, þvílíkt 70´s lið með samansafn að misslæmum klippingum.
Nú bara skil ég ekki neitt í neinu.
By
Fnatur, At
Saturday, 09 December, 2006
Já, ég verð víst að viðurkenna að ég er rúmlega þrítugur. Verð að ræða við Ástu um hvað má birta hér á blogginu.
Varðandi Dr Who þá má fá svör við þessum spurningum í næstu færslu.
Lifið heil,
Kalli
By
Bromley, At
Saturday, 09 December, 2006
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home