Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Friday, December 08, 2006

Fyrsta giggið

Óðinn er ekki fyrr búinn að brillera í Bugsy Malone uppfærslu skólans en Kalli litli hefur landað sínu fyrsta giggi í leikskólanum. Á mánudaginn mun hann syngja með hinum krökkunum jólalög og að auki spila á þríhorn. Þetta er klukkan þrjú og ég bara verð einhvern veginn að laumast úr vinnunni til að sjá þetta. Lögin vilja samt breytast í flutningi og er t.d. svona í skólanum hjá Óðni(klukknahljóm, klukknahljóm):
Jingle Bells
Batman smells
Robin layed an egg
Batmobile lost its wheel
and Joker got away
hey!

Jingle Bells
Batman smells
Robin layed an egg
Batmobile lost its wheel
and Joker took ballet
hey!
Og hana nú. Þetta þróast síðan yfir í dónalegri texta þegar krakkarnir eldast.
kv Kalli

1 Comments:

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home