Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Wednesday, March 15, 2006

Dvergakast

Það hefur verið sorglegt að horfa upp á hvað dvergakast sem íþróttagrein hefur dvínað mikið í vinsældum undanfarna áratugi. Má þar mörgu um kenna.
Fyrst má telja að framfarir í læknavísindum, og þá sérstaklega erfðafræði, hafa orðið þess valdandi að mjög hefur dregið úr framboði dverga um allan heim. Ísland hefur orðið sérstaklega illa úti hvað þetta varðar þar sem framboð dverga þar var mjög lítið fyrir. Þetta hefur orðið þess valdandi að þeir fáu dvergar sem eftir eru hafa verið stórlega ofnýttir og hafa unvörpum orðið fyrir alvarlegum álagsmeiðslum og sumir jafnvel ekki átt afturkvæmt. Fordómar gagnvart íþróttinni hafa einnig verið landlægir og margir frægustu dvergakastara heims hafa lagt dvergahanskana á hilluna þess vegna.
Það er því fagnaðarefni að Evrópusambandið hefur nú tekið málið upp á arma sína og er ætlunin að breiða íþróttina út á ný og gera hana að viðurkenndri Ólympíugrein. Til þess að svo geti orðið er nauðsynlegt að staðla íþróttina. Það gengur ekki til lengdar að handónýtir dvergakastarar geti unnið hvert mótið á fætur öðru bara með því að mæta alltaf á svæðið með dvergvaxnasta og léttasta dverginn. Munað hefur allt að 15kg á léttasta og þyngsta dvergnum á sumum stórmótum. Evrópusambandið hefur því skilgreint svokallaðan "staðaldverg" eða "Ólympískan dverg" sem er 30.25kg og 1.32m á hæð. Rannsóknir munu hafa sýnt að 95% dverga séu bæði léttari og lægri en þessar tölur. Héðan í frá verða dvergar vigtaðir og mældir á öllum mótum sem viðurkennd eru af Alþjóðasambandi dvergakastara og gefa dvergastig. Séu dvergar léttari eða lægri en Ólympískur dvergur eru sett lóð á dverginn eða hattur þangað til hann er 1.0 Ólympískur dvergur. Þetta útilokar reyndar um 5% þeirra sem telja sig dverga frá keppni, en vísindamenn hafa fært fyrir því rök að þeir séu nær því að vera lítið fólk en sannir dvergar.
Lifið heil. Kalli.

5 Comments:

  • Kalli minn... er ekkert að gera í vinnunni hjá þér???!!!!

    Samt áhugavert...
    kv.
    Anna Bj.

    By Anonymous Anonymous, At Thursday, 16 March, 2006  

  • Já þetta er nú ekki gott fyrir dvergstofninn. Annars ætla kanar að halda uppi heiðri dverga (að sjálfsögðu með sjónvarpsþætti). Á næstu vikum hefst hér þáttaröð einmitt um dverga og þeirra líf og hvað haldið þið að þáttaröðin heiti??????? Taaaaaraaaaa "The little people" jibbbíííií. Kalli, fyrst þú ert svona mikill áhugamaður um dverga.....villtu kannski að ég taki þættina upp fyrir þig ;) ?

    Kv, Fanney

    Lengi lifi Gúlíver

    By Anonymous Anonymous, At Thursday, 16 March, 2006  

  • Hey, hvað varð annars um alla linkana hjá ættingjum og vinum ykkar sem voru til hægri?????

    By Anonymous Anonymous, At Thursday, 16 March, 2006  

  • Þetta er alveg frábær pistill. Veit einhver hvor að handbolti eða dvergakast er vinsælli íþróttagrein í heiminum?

    By Blogger Hogni Fridriksson, At Saturday, 18 March, 2006  

  • Þetta er alveg frábær pistill. Veit einhver hvor að handbolti eða dvergakast er vinsælli íþróttagrein í heiminum?

    By Blogger Hogni Fridriksson, At Saturday, 18 March, 2006  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home