Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Monday, March 13, 2006

Komin aftur


Eftir frekar dapra pistla undanfarið hef ég ákveðið að hækka ánægjustillingu Bromleytíðinda um nokkur stig. Ég er komin aftur til Englands, læt dygga áskrifendur Bromleytíðinda vita ef um verða að ræða breytingar á heilsu móður minnar.

Ég hitti nokkur systkini mín á Íslandi í lok janúar. Það er orðið langt siðan við höfum hist og var tekin mynd af okkur við það tækifæri. Ég á aðra útgáfu af myndinni þar sem ég er brosandi en fannst það minna vera ég. Er að vinna í málunum.

Ég smyglaði vanalega pakkanum frá Íslandi, þ.e.:

Hrísmjólk með kaneldrullusósu
Hangikjötsálegg
Flatkökur
Páskaegg (kláruðust strax)
Síríusrjómasúkkulaði
Lifrarpylsa
Morgunblaðið
Kókómjólk

Frétti líka að pabbi gamli og Magga eru að koma til London í heimsókn, hlakka mikið til að sjá þau.

Kveðja,
Ásta

2 Comments:

  • Thetta eru dyrmaetar vörur sem smygladar eru til útlanda fra Islandi. Vid veljum okkur her i Svithod ad smygla mjólkurkexi, seríósi, hardfiski og síríussúkkuladi ad sjalfssögdu. Mer finnst sviar skrytnir ad selja ekki almennilegt seríós her eru bara med lelegar eftirlikingar, ussususs!

    By Blogger brynjalilla, At Tuesday, 14 March, 2006  

  • Hey skvís. Velkomin aftur til Englands. Tók ekki Kalli prins örugglega á móti þér?

    Kveðja, Fanney

    By Anonymous Anonymous, At Tuesday, 14 March, 2006  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home