Á Akureyri
Er að blogga á bókasafninu á Akureyri. Það hafa margir vera að spyrja um mömmu svo ég ákvað að setja niður nokkrar línur.
Hún rann á gólfið og brotnaði í kvölfarið á því að verið var að færa hana á milli stóls og rúms. Starfsmaðurinn missti takið á henni.
Hún er komin með nagla í lærið og sefur mestmegnis. Er á morfíni og stílum til að deyfa verki og byrjaði á sýklalyfjum í morgum vegna hækkaðs líkamshita. Hún hefur lítið drukkið og verður sennilega settur upp vökvaleggur í æð til að laga það, fari hún ekki að drekka meira í dag.
Takk fyrir falleg skeyti til mín, heyrumst fljótlega,
Ásta

5 Comments:
Gott að heyra að aðgerðin gekk vel!
Sennilega bara best að hún sofi sem mest svona fyrst á eftir.
Heyrumst þegar þú kemur til baka til UK.
kv.
Anna Björg
By
Anonymous, At
Thursday, 09 March, 2006
Elsku Ásta. Mikið leitt að heyra af henni mömmu þinni. Ég vona bara að hún jafni sig og brotið grói vel, skilaðu kveðju frá mér.
..gaman samt að vita af þér á landinu, væri ekki síðra að sjá framan í þig. Var að skemmta mér yfir Bromleytíðindunum, las allt frá því í janúar (hafði ekki kíkt síðan þá) ótrúlega skemmtilegt hjá ykkur. Ástarkveðja, Þórunn Ósk.
By
Anonymous, At
Friday, 10 March, 2006
Halló elsku Ásta, leitt að heyra þetta allt saman, hugsa fallega til þín og ykkar, gangi ykkur eins vel og hægt er. Heyri í þér fljótt og þegar betur stendur á.
Þín Eva Birgitta
By
Anonymous, At
Friday, 10 March, 2006
Hæ Ásta
Ég mun hugsa til ykkar með góðum batahugsunum. Gangi ykkur allt vel í hagin
Kv. M.Sif
By
Anonymous, At
Friday, 10 March, 2006
HÆ stelpur,
Takk fyrir hugulsemina, kem til Rvk á morgun laugardag en fer til Englands á sunnudaginn.
Kveðja,
Ásta
By
Bromley, At
Friday, 10 March, 2006
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home