Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Monday, February 27, 2006

Þar sem frá var horfið...

Eftir rúmlega vikulyfjameðferð við blogstipation er loksins einhvern árangur að sjá. Í millitíðinni hef ég unnið að kafla 34 í ævisögunni minni sem ber heitið "baráttan við geðveikina" og verður sennilega einnig heitið á öðru bindi af tíu.
Það helsta sem hefur gerst frá síðasta pistli
1. Eiginkona þingmanns frjálslyndra demókrata, sem nýlega varð uppvís að því að hafa keypt þjónustu brasílískra vændiskarla ótal sinnum og fannst sérstaklega stimmúlerandi að hafa þá íklædda fótboltabúningi uppi á rúmi, hefur fyrirgefið honum þennan "skort á dómgreind" eins og hann kaus sjálfur að kalla það. Það iljaði manni um hjartarætur að sjá þau hjónakornin skælbrosandi þar sem þau sátu saman fyrir blaðaljósmyndara eftir að sættir tókust.
2. Glæpalýður stal svo miklum peningum úr peningageymslu í Kent að þeir þurftu að skilja 15 miljón pund eftir á víðavangi og komust einungis undan með 35 milljón pund.
3. David Seaman, fyrrv. markvörður Arsenal datt út úr þætti þar sem Celebrity taka þátt í parakeppni í listdansi á skautum ásamt professional fólki. Eftirsjá að David, hann tók sig svo vel út í skautagallanum sminkaður í framan.
4. Þátttakendur í Celebrity Fit Club halda áfram að tapa þingd. Þáttakandanum sem fór í magaminnkun fyrir keppnina virðist hafa verið fyrirgefið meint svindl.
5. Þorrablót Íslendingafélagsins fór fram um helgina og tókst vel. Við Ásta fórum ekki, förum bara næst.
6. Fyrirhugað er að setja upp Fimbles (hræðilegar prjónaðar fígúrur fyrir krakka, svipað og stubbarnir) í leikhúsinu í Bromley. Ef ekki er leitað við innganginn færist ég nær langþráðum draumi um að hella yfir þær olíu og kveikja í.
kv Kalli

2 Comments:

  • Hahahahahaha. Ekki gleyma videócamerunni þegar þú sprautar yfir Fimbles olíunni og kveikir í. Þið verðið sennilega ríkari en Paris Hilton á því videói. Hafið þið samt ekkert fylgst með dancing with the stars? Hvað heitir skautaþátturinn? Var bara að spá í hvort það væri sá sami og er hérna þar sem einn dólgurinn fór frá eiginkonu sinni sem var komin 8 mánuði á leið til að skauta inn í hamingjuna með skautafélaga sínum.
    Kv, Fanney

    By Anonymous Anonymous, At Monday, 27 February, 2006  

  • Þátturinn heitir Dancing on Ice. Ég var að komast að því mér til mikillar ánægju að David er ekki dottinn út....something to look forward to kv Kalli

    By Blogger Bromley, At Thursday, 02 March, 2006  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home