Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Tuesday, March 14, 2006

Blindi maðurinn

Mér hefur loksins tekist að finna fólkið sem vélritar bréfin mín á göngudeildinni. Þegar ég bankaði á hurðina, sem var læst, leið nokkur stund þar til það var opnað. Inni voru þrjár manneskjur, tvær miðaldra konur og einn maður um fertugt með alskegg sem sat úti í horni og horfði furðu einbeittur á tölvuskjáinn og veitti mér enga athygli. Konurnar virtust hins vegar sérkennilega undrandi, það var eins og þær hefðu ekki búist við því að nokkrum myndi takast að finna þær til að biðja þær um að gera eitthvað. Þær bentu mér á bakka þar sem ég fann síðasta bréf. Efst á bréfið var skrifað: "blindi maðurinn gerði þetta bréf". Ég var ekki alveg viss hvað ég átti að halda. Var ég blindi maðurinn? Héldu þær virkilega að ég væri blindur? Ég var svo undrandi að ég vissi hreinlega ekki hvað ég átti að segja. Það vantaði hins vegar annað bréf fyrir sama sjúkling svo ég spurði aðra konuna hvort hún héldi að það væri tilbúið. Hún benti á manninn sem sat úti í horni og var jafn einbeittur sem fyrr. "Martin gerði þetta bréf, hann er blindur en við leiðréttum bréfin eftir að hann hefur vélritað þau". Síðan spurði hún Martin hvort hann kannaðist við bréfið. Hann hélt það og notaði músina síðan til að leita að skjalinu með því að nota blindraletur í lyklaborðinu. Ég var mjög hrifin bæði af tækninni og líka af því að blindur maður gæti haft það að atvinnu að vélrita bréf. Hvernig datt honum þetta eiginlega í hug? Ég ákvað samt ekki að hafa orð á því eða að hrósa Martin því ég vildi ekki vera með yfirlæti. Þegar ég yfirgaf skrifstofuna velti ég því samt fyrir mér hvers vegna konurnar skrifuðu "blindi maðurinn gerði þetta bréf", þegar þær vissu að hann heitir Martin. kv Kalli

6 Comments:

  • Hahahaha. Þetta er eins og lýsing úr skáldsögu. Reyndar gætur þú örugglega gert skáldsögu eftir þessa dvöl ykkar þarna sem yrði full af skrítnum atriðum eins og þessum.
    Gott að þið eruð bæði farin að blogga á ný...skál fyrir því.


    Kv, Fanney

    By Anonymous Anonymous, At Wednesday, 15 March, 2006  

  • Leiðrétting vestur-íslendingsins. Jafnvel GÆTIR þú örugglega SKRIFAÐ eða SAMIÐ skáldsöguna í staðinn fyrir að GERA hana eins og var pikkað í commentinu hér á undan hahahahahahaha.

    Kveðja, Fanney

    By Anonymous Anonymous, At Wednesday, 15 March, 2006  

  • Bwhaha=) Þetta er snilld! Ótrúlegt að þetta hafi gerst í alvörunni! Hljómar frekar eins og stórskemmtileg smásaga;)

    By Anonymous Anonymous, At Wednesday, 15 March, 2006  

  • Frábær saga!!
    OG velkomin til baka Ásta!!

    kv.
    Anna Björg

    By Anonymous Anonymous, At Wednesday, 15 March, 2006  

  • Sko, það telst sko ekki sko með að vera sko geðveikt duglegur sko að blogga sko og setja sko sama bloggið sko 4x inn á sko sko sko. Það er sko bara sko svindliskyndl sko sko.

    Lengi lifi, David Hasselhoffffff sem er mesti töffari allra tíma. Að sjálfsögðu fyrir utan Bill Clinton.

    By Anonymous Anonymous, At Wednesday, 15 March, 2006  

  • Já ég publisheraði þetta fjórum sinnum því símalínan stóð eitthvað á sér. Það var ekki fyrr en Martin hringdi í mig í morgun að ég uppgötvaði mistökin. kv Kalli

    By Blogger Bromley, At Wednesday, 15 March, 2006  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home