Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Monday, February 27, 2006

Frú nefmælt bloggar

Er bæði búin að jafna mig á flensu, kvefi og blogstipation. Var heima í dag, kunni ekki við að smita sjúklingana mína af einhverri veiru sem hefur herjað á mig síðustu daga. Náði þó í Óðinn í skólann og hlustaði á sellótíma sem hann fór í. Kennarinn var bara ánægður með árangurinn, sérstaklega eftir að ég greiddi henni fyrir tímana, verð að segja að Óðinn fékk bara mjög mikið hrós.

Ein mamman var ægilega spennt fyrir utan skólann, hnippti í mig og sagði stolt frá því að drengirnir hennar (hún á 6 ára tvíbura) hefðu verið samþykktir í einhvern fínan einkaskóla næsta vetur þar sem hvert ár kostar eina milljón ISK á haus. Þeir þurftu að sögn að taka inntökupróf inn í herlegheitin sem þeir náðu með glans. Ég samgladdist henni mjög, sérstaklega þegar hún sagði mér hversu fínir skólabúningarnir væru, stuttbuxur allan ársins hring, líka á veturna!! Frábært. Mér hefði nú dottið í hug að þeir ættu að hafa efni á því að sauma heilar skálmar á buxurnar fyrir alla peningana sem þeir þiggja í skólagjöld en svo er ekki.
Við Kalli vorum að velta því fyrir okkur hvað væri keypt fyrir peningana, höldum að lestrar, skriftar og reiknistímarnir séu bara svipaðir og í ríkisskólunum en sennilega sé fólk að borga fyrir framtíðarvini barnanna, þ.e. að þeir séu af fólki af góðum efnum þannig að félagslegi statusinn verði "fínni".

Mamman bauð mér og Óðni formlega í sunnudagshádegverðarboð 26. mars næstkomandi, við erum alveg ægispennt he he......góðar stundir í bili!!
Ásta

1 Comments:

  • Hey frábært að fá nýtt blogg og enn betra að þér líður betur. Já spurning um að þið mætið í stuttbuxum í sunnudagverðinn þann 26. mars. Hún yrði sennilega yfir sig hrifin af því kerlingin ;)
    Ein milljón í skólagjöld fyrir 6 ára börn.....er ekki nóg að punga út fyrir því þegar þau fara í háskólanám. Alltaf jafn ótrúlegt hvað heiminum er misskipt. Sumir borga milljón á ári í skólagjöld fyrir 6 ára gömul börn sín til að þau fái að vera í stuttbuxum allan ársins hring á meðan önnur börn fá ekki vatn að drekka. Þetta finnst mér alltaf jafn óþolandi við heiminn.
    Kveðja frá Fanney pirruðu sem er búin að vera 5 daga með flensuskít "pirr piiiiirrrrr"

    By Anonymous Anonymous, At Monday, 27 February, 2006  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home