Skrifræði
Eftir að hafa verið í Bretlandi í tæp tvö ár kemur fátt mér orðið á óvart þegar kemur að skrifræði. Þeir hafa alveg ótrúlegt dálæti á eyðublöðum og allt þarf að vera "politically correct". Varla að maður geti leigt DVD nema fylla út eyðublað um af hvaða kynþætti maður er.
Mér varð nú samt orða vant fyrir nokkrum dögum í vinnunni. Consultantinn minn býr á Írlandi og flýgur í vinnunni einu sinni í viku og hefur gert í nokkur ár. Þar af leiðandi þarf ég stundum að hringja til Írlands til að leita ráða. Ég tók upp símann og ætlaði bara svona rétt að slá á þráðinn. Síminn virkaði ekki þannig að ég hringdi í skiptiborðið og sagði frá vandræðum mínum. Þar var mér tjáð að ég gæti nú ekki bara hringt sísona út fyrir landsteinana; ég yrði að skrifa bréf til mannsins á skiptiborðinu og óska eftir að fá tengingu við útlönd, greina frá því við hvern ég ætlaði að tala og hvaðan ég væri að hringja!? Þar sem innanhúspósturinn á það til að týnast eða í besta falli komast á áfangastað á tveimur dögum var fallist á það að ég myndi skrifa bréf og senda það með faxi á skiptiborðið. Þetta verð ég sem sagt að gera fyrir hvert einasta dj.... símtal. Hvar er sparnaðurinn í þessu? kv Kalli

2 Comments:
Hahahaha magnað. Hvaða aftur úr fornöld kerfi er þetta eiginlega. Þetta hvetur þig bara enn meir til að kveikja Flimbles eða hvað sem blessuðu prjónabrúðurnar heita.
Lengi lifi Englandsdrotting ;)
By
Anonymous, At
Friday, 03 March, 2006
Bretarnir hætta aldrei að koma manni á óvart!!!
Ágætt að vita að það er skifræði á fleiri stöðum en hérna... þó Danirnir komist nú ekki með tærnar þar sem Bretarnir hafa hælana....
kv.
Anna Björg
By
Anonymous, At
Monday, 06 March, 2006
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home