Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Tuesday, February 14, 2006

veikindi

Karl Reynir liggur í flensu, við ætluðum út að borða á Valentínusardaginn en hann endaði á því að fá sér 1000 mg af paracetamóli í kvöldmat. Ég og strákarnir horfðum á NannyMcFee í staðinn, voða sæt mynd. Nörtuðum í eina Pizza Quatro Formaggio frá Pizza Express sem við fengum á 3.55 pund í stórmarkaðinum.

Óðinn er í fríi þessa vikuna, hefur verið að sýsla ýmislegt er m.a. búinn að semja leikrit sem hann ætlar að frumsýna á morgun. Er búinn að breyta herberginu í leikhús, búa til leiktjöld og föndra miða. Vinur hans úr skólanum ætlar að koma að leika á morgunn, ætti bara að vera fínn dagur.

Ég setti teljara inn á síðuna fyrir 3 dögum, hann er nú þegar kominn upp í 85. Það eru greinilega margir sem lesa síðuna. Það væri gaman að fá komment frá fleirum.

Kær kveðja,
Ásta

4 Comments:

  • Sæl öll sömul,
    gott að vita þetta með Pizzuna:-) mega vika hjá Dominos hér á landi þannig að nú skal spreðað og tuðað um verðið hér skal ég segja ykkur. Vonandi læknast Kalli af kvöldmatnum í gær og verður við hesta heilsu von bráðar, hvernig er það, þekkið þið ekki einhverja lækna þarna:-)
    kv. Eva

    By Anonymous Anonymous, At Wednesday, 15 February, 2006  

  • æææ.. láttu þér nú batna Kalli, alltaf leiðinlegt að vera veikur:(
    p.s. ég lauk við H&H í gær:)(langaði bara að deila þessu með ykkur;))

    By Anonymous Anonymous, At Wednesday, 15 February, 2006  

  • Kveðjur til lasarusar.
    Frá Indianagenginu ;)

    By Anonymous Anonymous, At Thursday, 16 February, 2006  

  • Er búin að bjóða Kalla brauð með Marmite. Ég er viss um að hann hressist við það ;)
    Kveðja, Fanney

    By Anonymous Anonymous, At Thursday, 16 February, 2006  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home