Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Friday, March 17, 2006

Djúpar pælingar

Á miðvikudögum þarf ég að vakna snemma til að hitta miðaldra konu sem þjáist hafa þunglyndi. Hún talar aðallega en ég hlusta.
Eftir hádegið er ég síðan í leiðsögn með þremur félögum sem einnig eru með sjúklinga í reglulegum viðtölum. Okkur til leiðsagnar er kona um fimmtugt, geðlæknir með samtalsmeðferð sem sérgrein. Hún er afar grönn og fíngerð, alltaf ómáluð og með stutt, ógreitt og grásprengt hár og lítur í fljótu bragði út eins og miðaldra karl. Fötin hennar passa aldrei saman, ekki einu sinni fyrir slysni. Hún er alltaf í skyrtu með alltof stórum kraga og í prjónuðu vesti. Flauelsbuxur, litaðir sokkar og flatbotna mokkasínur blasa síðan við ef maður gerist svo djarfur að mæla hana út.
Leiðsögnin fer fram í litlu herbergi með fjórum stólum sem allir koma sinn úr hvorri áttinni. Engin tölva er í herberginu frekar en öðrum herbergjum spítalans. Skrifborðið er úr brúnum við með lakki sem farið er að flagna og má muna sinn fífil fegurri. Rykugt teppi sér til þess að maður andar ekki of djúpt inn.
Herbergið er uppi á þriðju hæð í dæmigeru ensku múrsteinshúsi með inngrónu kolaryki. Allt er gert af vanefnum. Af öryggisástæðum eru samt allar millihurðir eldfastar og opnast aðeins með korti. Það er samt svo mikill skortur á þessum kortum að aðeins lítill hluti þeirra sem nota húsið hefur þau undir höndum. Þess vegna er flestum eldvarnarhurðum stöðugt haldið opnum með litlum handslökkvitækjum sem hanga við allar hurðirnar og eru því alltaf við hendina. Ef upp kemur eldur munu slökkvitækin sjá til þess að hann mun breiðast mjög hratt út og binda óvæntan endi á margar meðferðir.
Þessi tegund af samtalsmeðferð er að sjálfsögðu fullkomlega gagnslaus. Þetta vita flestir en enginn segir neitt því svo margir hafa lifibrauð sitt af þessu. Það væri hægt að bjóða fólki upp á stjörnuspá með sama árangri, kannski betri. Það eina sem ég hef lært á þessu er að það er engin hugmynd of galin þegar kemur að þessari meðferð. "Sjúklingurinn ákvað að verða flugmaður af því þotan er fyrir honum risastór reður í fullri reisn og hans helsta martröð er að verða getulaus".- "Gott hjá þér Peter, góð pæling".
Flesta tímana í leiðsögninni sit ég bara stjarfur og veit ekki hvort ég á að hlægja eða gráta. Stundum hefur mér dottið í hug að þetta sé falin myndavél, bara einn stór brandari. Ég verð samt að fara tjá mig eitthvað meira. Ég fékk þá hugmynd að sjóða saman einhverja algalna skýringu á vandamálum míns skjólstæðings sem í mínum huga er bara einmana og þunglyndur. Í næsta tíma ætla ég að varpa því fram að mín niðurstaða sé að vandamál hennar megi rekja til duldra hvata til að sofa hjá pabba sínum og drepa mömmu sína og bældrar ræðí sem hún getur ekki tjáð og snýst þess vegna gegn henni sjálfri með hörmulegum afleiðingum. Ef ég fæ góðar undirtektir er eitt nokkuð ljóst - það er myndavél í herberginu.

3 Comments:

  • Mega-pælingar greinilega í gangi. Húsnæðið hljómar ekki beint upplífgandi. Hvernig væri að gera tilraun og mála eitt herbergi í fallegum pastel litum og setja alltaf sömu sjúklinga í viðtalsmeðferð í það herbergi bara til að sjá hvort þeim skáni eitthvað meir heldur en þeir sem eru í viðtalsmeðferð hjá hommanum í prjónavestinu í þunglyndisteppaherberginu.
    Bara hugmynd.

    By Anonymous Anonymous, At Saturday, 18 March, 2006  

  • Hef komist að þeirri skoðun að Kalli getur átt 'side-career' sem a.m.k. smásagnahöfundur ef ekki þaðan af meira.

    Það er kraftur í þessum pistlum og lýsingin á enska múrsteinshúsinu með inngróna kolarykinu gæti allt eins átt heima í A Clockwork Orange eftir Anthony Burgess eða í Ulysses eftir Joyce.

    Einnig gæti lýsingin á grásprengda hárinu og flatbotna mokkasíunum verið í kvenlýsingu á Lolitu eftir Noabokov. Hér er því kominn á sjónarsviðið all-liðtækur penni og því ber að fagna.

    Enn kannski að Kalli sverji sig inn í skáldagen móðurættar Ástu því hún er uppfull af fólki sem gat og getur skrifað en fæstir nenna því svo nokkru nemi.

    =============

    Legg til að ef fundirnir í litla herberginu verða snubbóttari að Kalli nefni þá að þunglynda miðvikudagskonan hafi spurt hann erfiðrar spurningar þ.e. hvort eitthvað hafi verið að marka David Rosenhan sem taldi sig 1972 hafa sýnt fram á að geðlæknar eru ekki í stakk búnir til að greina á milli þeirra sem eru geðveikir og þeirra sem eru það ekki. Þá reynir á akademísk vinnubrögð hins grannleita, grásprengda samtalssérfræðings. Henni gæti jafnvel hlaupið kapp í kinn.

    Hlakka til að lesa fleiri djúpar pælingar.

    Lifið heil.
    Hallgrímur

    By Anonymous Anonymous, At Monday, 20 March, 2006  

  • Alveg sammála Hallgrími!! Þetta er snilldarlega vel skrifað! Lýsingarnar eru frábærar og maður sér það algjörlega fyrir sér:)

    By Anonymous Anonymous, At Tuesday, 21 March, 2006  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home